Ást, lotning, þjónusta, og hollusta við Guð (K&S 20:19 ). Tilbeiðsla felur í sér bæn, föstu, kirkjustarf, þátttöku í helgiathöfnum fagnaðarerindisins og annað það sem sýnir hollustu og ást á Guði.
Tilbiðjið hann af öllum mætti yðar, huga og styrk, 2 Ne 25:29 .
Þeir trúðu á Krist og tilbáðu föðurinn í hans nafni, Jakob 4:5 .
Senos kenndi að menn ættu að tilbiðja hvar sem þeir væru staddir, Al 33:3–11 .
Tilbiðjið Guð í anda og í sannleika, hvar sem þið kunnið að vera, Al 34:38 .
Fólkið féll að fótum Jesú og tilbað hann, 3 Ne 11:17 .
Allir menn verða að iðrast, trúa á Jesú Krist, og tilbiðja föðurinn í hans nafni, K&S 20:29 .
Ég gef yður þessi orð, svo að þér megið skilja og vita hvernig tilbiðja skal og hvað tilbiðja skal, K&S 93:19 .
Aðeins þann eina Guð vil ég tigna, HDP Móse 1:12–20 .
Vér krefjumst þeirra réttinda að fá að tilbiðja almáttugan Guð, TA 1:11 .