Námshjálp
Jarom


Jarom

Í Mormónsbók, Sonur Enosar og langafasonur Lehís. Hann hélt heimildaskrár Nefíta í sextíu ár, 420–361 f.Kr. (Enos 1:25; Jarom 1:13). Hann var maður trúfastur sem kaus að rita ekki margt í heimildaskrána (Jarom 1:2).

Bók Jaroms

Það eru einungis fimmtán vers í þessari bók Mormónsbókar. Jarom skráði að Nefítar héldu áfram að halda Móselög og vænta komu Krists. Þeir voru leiddir af konungum sem voru máttugir í trú. Þeim vegnaði vel því þeir fóru að ráðum spámanna sinna, presta og kennara.