Námshjálp
Immanúel


Immanúel

Eitt af nöfnum Jesú Krists. Það er dregið af hebreskum orðum sem merkja „Guð með oss.“

Immanúel er ávarpsheiti, gefið sem tákn fyrir frelsun Guðs (Jes 7:14). Ummæli Jesaja um Immanúel eru sérstaklega áréttuð af Matteusi sem spádómur um fæðingu Jesú til jarðlífs (Matt 1:18–25). Nafnið kemur einnig fyrir í síðari daga ritningu (2 Ne 17:14; 18:8; K&S 128:22).