Námshjálp
Magóg


Magóg

Í Biblíunni, land og þjóð nálægt Svartahafi. Konungur þeirrra, Góg, mun leiða heri Magógs í síðustu stórorrustunni fyrir síðari komu Krists (Esek 38:2; 39:6). Ritningarnar tala um aðra mikla orrustu Gógs og Magógs við lok þúsundáraríkisins milli herja Guðs og herja hins illa (Op 20:7–9; K&S 88:111–116).