Námshjálp
Lamanítar


Lamanítar

Flokkur manna í Mormónsbók, flestir þeirra afkomendur Lamans, elsta sonar Lehís. Þeir töldu sig hafa verið rangindum beitta af Nefí og afkomendum hans (Mósía 10:11–17). Af þeim sökum risu þeir gegn Nefítum og oft höfnuðu þeir fagnaðarerindinu. Þó meðtóku Lamanítar fagnaðarerindið stuttu fyrir fæðingu Krists og urðu réttlátari en Nefítar (He 6:34–36). Tvö hundruð árum eftir að Kristur kom til meginlanda Ameríku urðu bæði Lamanítar og Nefítar siðspilltir og upphófst styrjöld þeirra í milli. Um 400 e.Kr. eyddu Lamanítar Nefítaþjóðinni með öllu.