Tónlist
Bænamál


45

Bænamál

Íhugult

1. Ég á mér griðastað og stund,

er stillir heimslægt prjál,

þá ég kem á Drottins kærleiksfund

og krýp við bænamál.

[Chorus]

Megi bæna ljúfast lag

líf mitt verða nótt sem dag,

tengja himni hug og sál,

heilagt fyrir bænamál.

2. Við fagran engla friðarsöng

hér finnur mannleg sál

hinn krappa veg til himins heim

við heilög bænamál.

[Chorus]

Megi bæna ljúfast lag

líf mitt verða nótt sem dag,

tengja himni hug og sál,

heilagt fyrir bænamál.

3. Um lífsins æstan ólgusjó

við ofviðranna bál

er huggun ljúf, að hæstur Guð

mín heyrir bænamál.

[Chorus]

Megi bæna ljúfast lag

líf mitt verða nótt sem dag,

tengja himni hug og sál,

heilagt fyrir bænamál.

4. Ef þyrnum stráð er lífsins leið

með lævísinnar tál,

minn frelsari mig friðar þá

við fegurst bænamál.

[Chorus]

Megi bæna ljúfast lag

líf mitt verða nótt sem dag,

tengja himni hug og sál,

heilagt fyrir bænamál.

Lag og texti: Hans Henry Petersen, 1835–1909

Íslensk þýðing: Jón Hjörleifur Jónsson, 1923

Matteusarguðspjall 6:6

Alma 33:3–11