57
Beygðu kné þín
Rólega
1. Beygðu kné þín, bróðir veikur,
hæstur Guð við hönd þig leiðir,
þig leiðir sér við hönd
og veitir bænum þínum svör,
beygðu kné í bænum þínum
blíður Guð þér blessun veitir,
hann blessar þig og sýnir
að hann hirðir um þín kjör.
2. Beygðu kné í köllun þinni,
hæstur Guð af gæsku kennir
að þjóna börnum hans
af hreinni ást og fórnarlund,
beygðu kné þótt brenni þráin,
blíður Guð að lokum leiðir,
þig leiðir heim til sín
að þar þú dveljir alla stund.
Lag og texti: Grietje Terburg Rowley,1927–2015. © 1985 IRI
Íslensk þýðing: Friðrik Guðni þórleifsson, 1944.