Tónlist
Betlehems völlunum var hann á


78

Betlehems völlunum var hann á

Glaðlega

1. Betlehems völlunum var hann á,

voldugi söngurinn langt hér frá.

[Chorus]

Guði sé dýrð Guði sé dýrð

Guði sé dýrð á himnum hátt.

Frið á jörð hér flytjum vér,

farsæld öllum mönnum ber.

2. Fjárhirðar heyrðu þann fagra óð,

fagnandi englanna dýrðar ljóð.

[Chorus]

Guði sé dýrð Guði sé dýrð

Guði sé dýrð á himnum hátt.

Frið á jörð hér flytjum vér,

farsæld öllum mönnum ber.

3. Máttug í söngnum er mildin há,

miskunnar boðskapur himni frá.

[Chorus]

Guði sé dýrð Guði sé dýrð

Guði sé dýrð á himnum hátt.

Frið á jörð hér flytjum vér,

farsæld öllum mönnum ber.

4. Drottinn með englunum einnig vér

óskum að gleðjast í söng frá þér.

[Chorus]

Guði sé dýrð Guði sé dýrð

Guði sé dýrð á himnum hátt.

Frið á jörð hér flytjum vér,

farsæld öllum mönnum ber.

Lag og texti: John Menzies Macfarlane, 1833–1892

Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson, 1891–1983

Lúkasarguðspjall 2:8–20

Kenning og sáttmálar 45:71