Ritningar
Kenning og sáttmálar 18


18. Kafli

Opinberun til spámannsins Josephs Smith, Olivers Cowdery og Davids Whitmer, gefin í Fayette, New York, í júní 1829. Samkvæmt spámanninum kynnti þessi opinberun „köllun tólf postula á þessum síðustu dögum og veitti leiðbeiningar varðandi uppbyggingu kirkjunnar.“

1–5, Ritningar sýna hvernig byggja á upp kirkjuna; 6–8, Misgjörðir heimsins vaxa; 9–16, Verðmæti sálna er mikið; 17–25, Menn verða að taka á sig nafn Krists til að öðlast sáluhjálp; 26–36, Köllun og ætlunarverk hinna tólf er opinberað; 37–39, Oliver Cowdery og David Whitmer eiga að velja hina tólf; 40–47, Til að öðlast sáluhjálp verða menn að iðrast, láta skírast og halda boðorðin.

1 Sjá, vegna þess sem þú, þjónn minn Oliver Cowdery, hefur æskt að fá að vita hjá mér, gef ég þér þessi orð:

2 Sjá, ég hef við mörg tækifæri gjört þér kunnugt með anda mínum, að það, sem þú hefur skráð, er asannleikur. Þú veist þess vegna að það er sannleikur.

3 Og vitir þú að það er sannleikur, sjá, þá gef ég þér þau boð, að treysta því sem aritað er —

4 Því að þar er allt skráð um grundvöll kirkju minnar, afagnaðarerindi mitt og bbjarg mitt.

5 Ef þú þess vegna byggir upp kirkju mína á grundvelli fagnaðarerindis míns og á bjargi mínu, munu hlið heljar eigi á þér sigrast.

6 Sjá, misgjörðir aheimsins vaxa, og því er nauðsynlegt að vekja mannanna börn til iðrunar, bæði bÞjóðirnar og einnig Ísraelsætt.

7 Þar eð þjónn minn Joseph Smith yngri hefur askírt þig að boði mínu, hefur hann uppfyllt það sem ég bauð honum.

8 Og undrast nú ei, að ég hef kallað hann í eigin tilgangi, þeim tilgangi sem ég þekki. Ef hann þess vegna aheldur boðorð mín af bkostgæfni, mun hann cblessaður með eilífu lífi; og nafn hans er dJoseph.

9 Og nú tala ég til þín, Oliver Cowdery, og einnig til Davids Whitmer og gef yður boðorð. Því að sjá, ég býð öllum mönnum, alls staðar að iðrast, og ég ávarpa yður, já, eins og Pál apostula minn, því að þér eruð einmitt kallaðir til sömu köllunar og hann var kallaður.

10 Hafið hugfast að averðmæti bsálna er mikið í augum Guðs —

11 Því að sjá, Drottinn alausnari yðar leið bpíslardauða í holdinu. Hann cleið þess vegna dkvalir allra manna, svo að allir menn gætu iðrast og komið til hans.

12 Og hann hefur arisið aftur upp frá dauðum, til þess að geta leitt alla menn til sín, gegn því að þeir biðrist.

13 Og hversu mikil er agleði hans yfir þeirri sál sem iðrast!

14 Þess vegna eruð þér kallaðir til að aboða þessu fólki iðrun.

15 Og fari svo, að þér erfiðið alla yðar daga við að boða þessu fólki iðrun og leiðið, þó ekki sé nema eina asál til mín, hversu mikil skal þá gleði yðar verða með henni í ríki föður míns!

16 Og verði nú gleði yðar mikil með einni sál, sem þér hafið leitt til mín inn í aríki föður míns, hversu mikil yrði þá bgleði yðar, ef þér cleidduð margar sálir til mín!

17 Sjá, þér hafið fagnaðarerindi mitt frammi fyrir yður og bjarg mitt og ahjálpræði mitt.

18 aBiðjið til föðurins í mínu bnafni í trú, og í trú á að yður muni hlotnast, og þér skuluð hafa heilagan anda, sem opinberar allt það, sem mannanna börnum er cæskilegt.

19 En skorti yður atrú, bvon og ckærleika, getið þér ekkert gjört.

20 aStríðið ei gegn nokkurri kirkju nema bkirkju djöfulsins.

21 Takið á yður anafn Krists og bsegið sannleikann af cárvekni.

22 Og allir þeir sem iðrast og eru askírðir í mínu nafni, sem er Jesús Kristur, og bstanda stöðugir allt til enda, þeir skulu hólpnir verða.

23 Sjá, Jesús Kristur er það anafn, sem faðirinn gefur, og ekkert annað nafn er gefið, sem frelsað getur manninn —

24 Þess vegna verða allir menn að taka á sig það nafn, sem faðirinn hefur gefið, því að með því nafni verða þeir kallaðir á efsta degi —

25 Ef þeir þess vegna þekkja ekki það anafn, sem þeir verða kallaðir með, geta þeir ekki eignast stað í bríki föður míns.

26 Og sjá nú, aðrir eru kallaðir til að boða fagnaðarerindi mitt, bæði aÞjóðunum og Gyðingum —

27 Já, jafnvel tólf, og hinir atólf skulu vera lærisveinar mínir og þeir skulu taka á sig nafn mitt. Og hinir tólf eru þeir, sem þrá munu af öllu hjarta að taka á sig bnafn mitt.

28 Og þrái þeir af öllu hjarta að taka á sig nafn mitt, þá eru þeir kallaðir til að fara út um allan aheim og prédika bfagnaðarboðskap minn chverri skepnu.

29 Og þetta eru þeir, sem ég hef vígt til að askíra í mínu nafni, samkvæmt því sem skrifað stendur —

30 Og þér hafið það, sem skrifað stendur, frammi fyrir yður. Þess vegna verðið þér að framkvæma það í samræmi við þau orð, sem rituð eru.

31 Og nú tala ég til yðar, hinna atólf — Sjá, náð mín nægir yður. Þér verðið að ganga grandvarir frammi fyrir mér og syndga ekki.

32 Og sjá, þér eruð þeir sem ég hef vígt til að avígja presta og kennara, til að boða fagnaðarerindi mitt, bsamkvæmt krafti heilags anda, sem í yður er, og samkvæmt cköllunum og gjöfum Guðs til mannanna —

33 Og ég, Jesús Kristur, Drottinn yðar og Guð yðar, hef talað þetta.

34 Þessi aorð eru ekki frá mönnum, né frá nokkrum manni komin, heldur frá mér. Þess vegna skuluð þér bera því vitni, að þau eru mín, en ekki mannanna —

35 Því að það er mín arödd, sem talar þau til yðar. Því að þau eru gefin yður af anda mínum, og fyrir kraft minn getið þér lesið þau hver fyrir annan. Og án krafts míns gætuð þér ekki haft þau —

36 Þess vegna getið þér avottað, að þér hafið heyrt rödd mína og þekkið orð mín.

37 Og sjá, ég fel þér, Oliver Cowdery, og einnig þér, David Whitmer, að leita hinna tólf, sem bera þær þrár í brjósti, sem ég hef talað um —

38 Og af þrám þeirra og averkum þeirra skuluð þér þekkja þá.

39 Og þegar þér hafið fundið þá, skuluð þér sýna þeim þetta.

40 Og þér skuluð falla á kné og atilbiðja föðurinn í mínu nafni.

41 Og þér verðið að prédika fyrir heiminum og segja: Þér verðið að iðrast og láta skírast í nafni Jesú Krists —

42 Því að allir menn verða að iðrast og láta skírast, og ekki aðeins karlar, heldur konur og þau börn, sem náð hafa aábyrgðaraldri.

43 Og eftir að þér hafið nú tekið á móti þessu, verðið þér að halda aboðorð mín í öllu —

44 Og með höndum yðar mun ég vinna aundursamlegt verk á meðal mannanna barna, þannig að margir bsannfærist um syndir sínar, svo að þeir geti iðrast og komist inn í ríki föður míns.

45 Þess vegna eru þær blessanir, sem ég gef yður, öllu aæðri.

46 Og ef þér ahaldið ei boðorð mín, eftir að þér hafið tekið við þessu, getið þér eigi orðið hólpnir í ríki föður míns.

47 Sjá, ég, Jesús Kristur, Drottinn yðar, Guð yðar og lausnari yðar, hef talað þetta með krafti anda míns. Amen.