Ritningar
Kenning og sáttmálar 26


26. Kafli

Opinberun gefin spámanninum Joseph Smith, Oliver Cowdery og John Whitmer í Harmony, Pennsylvaníu, í júlí 1830 (sjá formála að kafla 24).

1, Þeim er sagt að nema ritningarnar og prédika; 2, Lögmál almennrar samþykktar staðfest.

1 Sjá, ég segi yður, að þér skuluð helga tíma yðar því að anema ritningarnar, og prédika og styrkja kirkjuna í bColesville, og yrkja land yðar eins og með þarf, þar til þér farið vestur til að halda næstu ráðstefnu. Og þá mun yður sagt hvað gjöra skal.

2 Og allt skal gjört með aalmennri samþykkt í kirkjunni, með heitum bænum og trú, því að allt skuluð þér meðtaka í trú. Amen.