Ritningar
Kenning og sáttmálar 35


35. Kafli

Opinberun gefin spámanninum Joseph Smith og Sidney Rigdon í eða í grennd við Fayette, New York, 7. desember 1830. Á þessum tíma var spámaðurinn næstum daglega önnum kafinn við þýðingu á Biblíunni. Þýðingin hófst þegar í júní 1830 og bæði Oliver Cowdery og John Whitmer höfðu þjónað sem ritarar. Þar sem þeir höfðu nú verið kallaðir til annarra starfa, var Sidney Rigdon kallaður með guðlegri tilnefningu til þjónustu sem ritari spámannsins við þetta verk (sjá 20. vers). Sem formála að skráningu þessarar opinberunar segir í sögu Josephs Smith: „Í desember kom Sidney Rigdon [frá Ohio] til að gjöra fyrirspurn til Drottins og með honum var Edward Partridge … Stuttu eftir komu þessara tveggja bræðra mælti Drottinn þetta.“

1–2, Hvernig menn geta orðið synir Guðs; 3–7, Sidney Rigdon er kallaður til að skíra og til að veita heilagan anda; 8–12, Tákn og undur eru unnin í trú; 13–16, Þjónar Drottins munu þreskja þjóðirnar með krafti andans; 17–19, Joseph Smith heldur lyklum leyndardómanna; 20–21, Hinir kjörnu munu standast komudag Drottins; 22–27, Ísrael mun frelsast.

1 Hlýðið á rödd Drottins Guðs yðar, já, Alfa og Ómega, upphafs og endis, en farvegur hans er eilíf hringrás, hinn sami í dag og í gær og að eilífu.

2 Ég er Jesús Kristur, sonur Guðs, sem krossfestur var vegna synda heimsins, svo að allir þeir, sem trúa munu á nafn mitt, megi verða synir Guðs, já, verða eitt í mér, eins og ég er eitt í föðurnum, eins og faðirinn er eitt í mér, að við megum verða eitt.

3 Sjá, sannlega, sannlega segi ég við þjón minn Sidney, ég hef litið á þig og verk þín. Ég hef heyrt bænir þínar og búið þig undir stærra verk.

4 Þú ert blessaður, því að þú munt vinna stórvirki. Sjá þú varst sendur, rétt eins og Jóhannes, til að greiða mér veg og Elía, sem koma skyldi, og þú vissir það ekki.

5 Þú skírðir iðrunarskírn með vatni, en þeir meðtóku ekki heilagan anda —

6 En nú gef ég þér boðorð, að þú skírir með vatni, og þeir munu hljóta heilagan anda með handayfirlagningu, rétt eins og hjá postulunum til forna.

7 Og svo ber við, að mikið verk verður unnið í landinu, jafnvel á meðal Þjóðanna, því að heimska þeirra og viðurstyggð skal afhjúpuð fyrir allra augum.

8 Því að ég er Guð, og armur minn hefur ekki styst, og ég mun sýna kraftaverk, tákn og undur öllum þeim, sem trúa á nafn mitt.

9 Og allir, sem biðja þess í mínu nafni og í trú, skulu kasta út djöflum, þeir skulu lækna sjúka, gefa blindum sjón, daufum heyrn og dumbum mál, og lömuðum mátt.

10 Og brátt líður að því, að mannanna börnum verða sýnd stórmerki —

11 En án trúar mun ekkert kunngjört utan eyðing Babýlonar, hinnar sömu, sem látið hefur allar þjóðir teyga af reiðivíni ólifnaðar síns.

12 Og enginn gjörir gott nema þeir, sem reiðubúnir eru að meðtaka fyllingu fagnaðarerindis míns, sem ég hef sent þessari kynslóð.

13 Ég kalla þess vegna á hið veika í heiminum, þá ólærðu og smáðu, til að þreskja þjóðirnar með krafti anda míns —

14 Og armur þeirra skal vera armur minn og ég mun vera skjöldur þeirra og brynja. Og ég mun girða lendar þeirra, og þeir munu berjast vasklega fyrir mig. Og óvinir þeirra verða undir fótum þeirra og ég mun láta sverðið falla þeirra vegna og með eldi réttlátrar reiði minnar mun ég vernda þá.

15 Og hinum fátæku og hógværu skal boðað fagnaðarerindið og þeir munu líta fram til komu minnar, því að hún nálgast —

16 Og þeir munu nema dæmisöguna um fíkjutréð, því að nú þegar er sumarið í nánd.

17 Og með hendi þjóns míns, Josephs, hef ég sent fram fyllingu fagnaðarerindis míns, og í veikleika hef ég blessað hann —

18 Og ég hef gefið honum lyklana að leyndardómum þess, sem innsiglað hefur verið, jafnvel þess, sem verið hefur frá grundvöllun heimsins og þess, sem koma skal frá þessum tíma og fram að komu minni, ef hann er trúr í mér. En ef ekki, mun ég setja annan í hans stað.

19 Vak þess vegna yfir honum, svo að trú hans bregðist ekki, og það mun gefið með huggaranum, hinum heilaga anda, sem allt veit.

20 Og boð gef ég þér — að þú skrifir fyrir hann, og ritningarnar verða gefnar, alveg eins og þær eru í mínu eigin brjósti, til hjálpræðis mínum kjörnu —

21 Því að þeir munu heyra rödd mína og skulu sjá mig, en ekki sofa, og munu standast komudag minn, því að þeir skulu hreinsaðir verða, já, eins og ég er hreinn.

22 Og nú segi ég þér: Ver hjá honum og hann mun ferðast með þér. Yfirgef hann ekki, og þetta mun vissulega uppfyllast.

23 Og þegar þið eruð ekki við skriftir, sjá, þá mun honum gefið að spá. Og þú skalt boða fagnaðarerindi mitt og vitna til hinna heilögu spámanna til að sanna orð hans, eins og þau verða honum gefin.

24 Hald öll boðorð og alla sáttmála, sem þú ert bundinn af, og ég mun láta himnana bifast þér til góðs, og Satan skal skjálfa og Síon fagna og blómstra á hæðunum —

25 Og Ísrael skal frelsaður verða þegar mér hentar og þeir skulu leiddir með lyklum þeim, sem ég hef gefið, og á engan hátt framar verða leiddir afvega.

26 Lyftið hjörtum yðar og gleðjist, endurlausn yðar nálgast.

27 Óttast ei, litla hjörð, ríkið er yðar þar til ég kem. Sjá, ég kem skjótt. Já, vissulega. Amen.