Aðalráðstefna
Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn
Aðalráðstefna október 2021


Stuðningur við aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn

Bræður og systur, eins og kunngert var, mun ég nú kynna ykkur aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu og aðalembættismenn kirkjunnar og biðja um stuðning ykkar.

Sýnið vinsamlega stuðning ykkar á hefðbundinn hátt, hvar sem þið kunnið að vera. Ef einhverjir eru á móti einhverju því sem hér verður lagt fram, biðjum við að þeir hafi samband við stikuforseta sinn.

Þess er beiðst að við styðjum Russell Marion Nelson sem spámann, sjáanda og opinberara og forseta Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu; Dallin Harris Oaks sem fyrsta ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu; og Henry Bennion Eyring sem annan ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu.

Þeir sem eru því samþykkir, sýni það.

Þeir sem eru því mótfallnir, sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum Dallin H. Oaks sem forseta Tólfpostulasveitarinnar og M. Russell Ballard sem starfandi forseta Tólfpostulasveitarinnar.

Allir sem eru því samþykkir, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni hann það.

Þess er beiðst að við styðjum sem meðlimi Tólfpostulasveitarinnar: M. Russell Ballard, Jeffrey R. Holland, Dieter F. Uchtdorf, David A. Bednar, Quentin L. Cook, D. Todd Christofferson, Neil L. Andersen, Ronald A. Rasband, Gary E. Stevenson, Dale G. Renlund, Gerrit W. Gong og Ulisses Soares.

Þeir sem eru því samþykkir, sýni það.

Sé einhver á móti, sýni hann það.

Þess er beiðst að við styðjum ráðgjafa í Æðsta forsætisráðinu og Tólfpostulasveitina sem spámenn, sjáendur og opinberara.

Allir sem það samþykkja, sýni það.

Ef einhver á móti, sýni hann það með sama merki.

Við höfum leyst af öldunga J. Devn Cornish, Timothy J. Dyches, David F. Evans, Robert C. Gay, James B. Martino og Terence M. Vinson sem aðalvaldhafa Sjötíu, en þeir verða áfram heiðraðir sem fyrrverandi aðalvaldhafar.

Þeir sem vilja sýna þessum bræðum og fjölskyldum þeirra þakklæti fyrir dygga þjónustu, sýni það vinsamlega með handauppréttingu.

Við vekjum athygli á að öldungur Dean M. Davies, sem lést 31. ágúst 2021, hefði verið leystur af sem aðalvaldhafi Sjötíu á þessari ráðstefnu. Við vottum systur Darla Davies og fjölskyldunni innilega samúð og færum þakkir fyrir óþreytandi þjónustu öldungs Davies.

Við vekjum einnig athygli á og þökkum þeim svæðishöfum Sjötíu, sem lokið hafa þjónustu sinni á liðnu ári.

Þeir sem vilja sýna þessum bræðum þakklæti fyrir framúrskarandi þjónustu, sýni það.

Þess er beiðst að við styðjum aðra aðalvaldhafa, svæðishafa Sjötíu – þar með talda tvo nýja svæðishafa Sjötíu, sem kynntir voru fyrr í vikunni á newsroom.ChurchofJesusChrist.org – og aðalembættismenn eins og skipan þeirra er nú.

Allir sem það samþykkja, sýni það.

Sé einhver á móti, sýni hann það.

Við þökkum fyrir stöðuga trú ykkar og bænir í þágu leiðtoga kirkjunnar.

Breytingar á svæðishöfum Sjötíu

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru studdir á leiðtogafundi sem haldinn var sem hluti af aðalráðstefnu:

Pedro E. Hernández og Charden Ndinga.

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru leystir af á leiðtogafundi sem haldinn var sem hluti af aðalráðstefnu:

Guillermo I. Guardia og Gaëtan Kelounou.

Eftirtaldir svæðishafar Sjötíu voru leystir af þann 1. ágúst 2021:

P. David Agazzani, Quilmer A. Agüero, Frederick O. Akinbo, Nelson Ardila, Richard C. Baquiran, Dong Chol Beh, Matthieu Bennasar, Lawrence P. Blunck, Luis J. Camey, Douglas B. Carter, Aroldo B. Cavalcante, Luis C. Chaverri, Ulises Chávez, Brent J. Christensen, Douglas L. Dance, M. T. Ben Davis, Marc C. Davis, J. Scott Dorius, M. Dirk Driscoll, Antonio F. Faúndez, José A. Fernández, Matías D. Fernández, Candido Fortuna, Bruce E. Ghent, Michael A. Gillenwater, Michael D. Groll, Daniel G. Hamilton, Tom-Atle Herland, Raymond S. Heyman, Jerat K. C. Igwe, Christophe Kawaya, John A. Koranteng, Ming-Shun Kuan, Todd S. Larkin, Juan J. Levrino, Carlo M. Lezano, Felix A. Martinez, J Vaun McArthur, Kevin K. Miskin, Helamán Montejo, Michael R. Murray, Ryan V. Pagaduan, A. Moroni Pérez, Carlos E. Perrotti, Mark P. Peteru, Thomas T. Priday, Brian L. Rawson, Rene Romay, Blake M. Roney, Luis G. Ruiz, Maximo A. Saavedra Jr., Pedro A. Sanhueza, Eric J. Schmutz, Paul H. Sinclair, Benjamin T. Sinjoux, David L. Stapleton, Daniel Texeira, Seiji Tokuzawa, Maxsimo C. Torres, Jesús Vélez, Carlos Villarreal, Paul H. Watkins, Robert K. William, C. Dale Willis, Kevin J Worthen og Luis G. Zapata.