Ritningar
Kenning og sáttmálar 25


25. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith í Harmony, Pennsylvaníu, í júlí 1830 (sjá formála að kafla 24). Þessi opinberun birtir Emmu Smith, eiginkonu spámannsins, vilja Drottins.

1–6, Emma Smith, kjörin kona, er kölluð til að aðstoða og hughreysta eiginmann sinn; 7–11, Hún er einnig kölluð til að skrifa, til að útskýra ritningar og til að safna sálmum; 12–14, Söngur hinna réttlátu er bæn til Drottins; 15–16, Reglur um hlýðni í þessari opinberun eru til allra.

1 Hlýð þú á rödd Drottins Guðs þíns meðan ég tala til þín, Emma Smith, dóttir mín. Því að sannlega segi ég þér, að allir þeir sem meðtaka fagnaðarerindi mitt, eru synir og dætur í ríki mínu.

2 Opinberun gef ég þér varðandi vilja minn, og sért þú staðföst og gangir á vegi dyggðarinnar frammi fyrir mér, mun ég varðveita líf þitt og þú skalt hljóta arf í Síon.

3 Sjá, syndir þínar eru þér fyrirgefnar, og þú ert kjörin kona, sem ég hef kallað.

4 Kvarta ekki vegna þess, sem þú hefur ekki séð, því að um tíma er það hulið þér og heiminum, samkvæmt visku minni.

5 Og embætti köllunar þinnar er að vera þjóni mínum, Joseph Smith yngri, eiginmanni þínum, huggun í þrengingum hans, með hughreystingarorðum, í hógværum anda.

6 Og þú skalt fara með honum þegar hann fer og vera ritari hans þegar enginn annar ritari er fyrir hendi, svo að ég geti sent þjón minn, Oliver Cowdery, hvert sem mér hentar.

7 Og af hans hendi skalt þú vígð til að útskýra ritningar og hvetja kirkjuna, eins og andi minn segir þér.

8 Því að hann skal leggja hendur yfir þig og þú skalt meðtaka heilagan anda, og þú skalt nýta tíma þinn til skrifta og mikils lærdóms.

9 Og þú þarft ekki að óttast, því að eiginmaður þinn mun styðja þig í kirkjunni. Því að fyrir hana er köllun hans, svo að allt, sem ég vil, megi opinberað þeim, í samræmi við trú þeirra.

10 Og sannlega segi ég þér, að þú skalt leggja til hliðar það, sem þessa heims er, og leita þess, sem betra er.

11 Og þér skal einnig falið val á heilögum sálmum, sem mér er þóknanlegt að hafa í kirkju minni, eins og það verður gefið þér.

12 Því að sál mín hefur unun af söng hjartans, já, söngur hinna réttlátu er bæn til mín, og henni mun svarað með blessun yfir höfuð þeirra.

13 Lyft því upp hjarta þínu og fagna og hald fast við þá sáttmála, sem þú hefur gjört.

14 Hald áfram í hógværð og gæt þín á ofurdrambi. Lát sálu þína gleðjast yfir eiginmanni þínum og þeirri dýrð, sem yfir hann mun koma.

15 Hald ávallt boðorð mín, og þú munt hljóta kórónu réttlætisins. En gjörir þú það ei, kemst þú ekki þangað, sem ég er.

16 Og sannlega, sannlega segi ég þér, að þetta er rödd mín til allra. Amen.