Ritningar
Kenning og sáttmálar 14


14. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til Davids Whitmer, í Fayette, New York, í júní 1829. Whitmer-fjölskyldan hafði fengið mikinn áhuga á þýðingu Mormónsbókar. Joseph flutti aðsetur sitt á heimili Peters Whitmer eldri, þar sem hann dvaldi, uns þýðingarstarfinu lauk og útgáfuréttur bókarinnar var tryggður. Þrem sonum Whitmer-hjónanna, sem allir höfðu fengið vitnisburð um áreiðanleika þessa verks, var mjög umhugað um persónulega skyldu sína. Þessi opinberun og tvær næstu (kafli 15 og 16) voru gefnar með Úrím og Túmmím, sem svar við fyrirspurn. David Whitmer varð seinna eitt vitnanna þriggja að Mormónsbók.

1–6, Verkamenn í víngarðinum munu öðlast sáluhjálp; 7–8, Eilíft líf er mest allra gjafa Guðs; 9–11, Kristur skapaði himna og jörð.

1 Mikið og undursamlegt verk er að hefjast meðal mannanna barna.

2 Sjá, ég er Guð. Gef gaum að orði mínu, sem er lifandi og kröftugt, beittara en tvíeggjað sverð, er smýgur bæði gegnum merg og bein. Gef þess vegna gaum að orði mínu.

3 Sjá, akurinn er þegar hvítur til uppskeru. Hver, sem þess vegna þráir að uppskera, skal beita sigð sinni af mætti sínum og uppskera meðan dagur endist, svo að hann megi búa sálu sinni ævarandi hjálpræði í ríki Guðs.

4 Já, hver sá, sem beita mun sigð sinni og uppskera, hann er kallaður af Guði.

5 Ef þér þess vegna biðjið mig, mun yður gefast. Ef þér knýið á, mun fyrir yður upplokið verða.

6 Leitist við að tryggja og efla mína Síon. Haldið boðorð mín í öllu.

7 Og ef þú heldur boðorð mín og stendur stöðugur allt til enda, skalt þú öðlast eilíft líf, en sú gjöf er mest allra gjafa Guðs.

8 Og svo mun bera við, að ef þú biður föðurinn í mínu nafni og í öruggri trú, munt þú meðtaka heilagan anda, sem málið gefur, svo að þú megir standa sem vitni þess, er þú munt bæði heyra og sjá, og getir einnig boðað þessari kynslóð iðrun.

9 Sjá, ég er Jesús Kristur, sonur hins lifanda Guðs, sem skapaði himna og jörð, ljós, sem ekki er unnt að dylja í myrkrinu.

10 Þess vegna verð ég að leiða fram fyllingu fagnaðarerindis míns frá Þjóðunum til Ísraelsættar.

11 Og sjá, þú ert David, og þú ert kallaður til aðstoðar, og ef þú gjörir svo og reynist trúr, munt þú bæði hljóta andlega og stundlega blessun, og mikil verða laun þín. Amen.