Ritningar
Kenning og sáttmálar 4


4. Kafli

Opinberun gefin með spámanninum Joseph Smith til föður hans, Josephs Smith eldri, í Harmony, Pennsylvaníu, í febrúar 1829.

1–4, Dygg þjónusta frelsar þjóna Drottins; 5–6, Guðlegir eiginleikar gera þá hæfa til þjónustunnar; 7, Leita verður þess sem Guðs er.

1 Sjá nú, undursamlegt verk er að hefjast á meðal mannanna barna.

2 Ó þér, sem gangið í þjónustu Guðs, gætið þess því að þjóna honum af öllu hjarta yðar, mætti, huga og styrk, svo að þér megið standa saklausir frammi fyrir Guði á efsta degi.

3 Ef þér þráið þess vegna að þjóna Guði, eruð þér kallaðir til verksins —

4 Því að sjá, akurinn er þegar hvítur til uppskeru; og tak eftir, að sá sem beitir sigð sinni af mætti sínum, sá hinn sami safnar sér forða, svo að hann farist eigi, heldur búi sálu sinni hjálpræði —

5 Og trú, von, kærleikur og ást, með einbeittu augliti á dýrð Guðs, gjörir hann hæfan til verksins.

6 Hafið í huga trú, dyggð, þekkingu, hófsemi, þolinmæði, bróðurlega góðvild, guðrækni, kærleik, auðmýkt, kostgæfni.

7 Biðjið og yður mun gefast, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Amen.