Kenn mér hans ljósið
Biðjandi
Fylgirödd að vali (við 3. vers) fyrir flautu eða fiðlu
1(Barn) Kenn mér hans ljósið og kærleik að fá.
Kenn mér að biðja Guð himninum á.
Kenn mér, svo réttlæti vísi mér veg,
veginn ljóssins, sem ganga vil ég.
2(Foreldri) Barnið mitt, komdu, af boðorðum hans
bæði við lærum, að heim til hans lands
eigum að fara og elsku hans fá.
alltaf verðum í ljósinu þá.
3(Bæði) Faðir á himnum, hve þökkum við þér.
Þú hefur sýnt okkur veginn þinn hér.
Þakklát við flytjum þér fagnaðar lag,
fögnum, gleðjumst við ljós þitt hvern dag.
Sjá einnig Sálmar (1993), nr. 116
Lag og texti: Clara W. McMaster, 1904–1997. © 1958 IRI. Höfundarréttur endurnýjaður 1986.
Íslensk þýðing: MarÍus Ólafsson
Fylgirödd: Darwin Wolford, f. 1936. © 1989 IRI