Tónlist
Bæn barns


6

Bæn barns

Með lotningu

Syng raddir hvora um sig fyrst, síðan saman.

1. Himneski faðir, ert þú þarna,

heyrir og svarar bænum allra barna?

Himininn segja sumir langt frá.

Í bæninni finn ég hann samt fast mér hjá.

Náðugi faðir. Nú man ég það,

og Jesús sagði lærisveinunum það:

„Leyfið börnum að koma til mín.“

Faðir, í bæn ég kem til þín.

2. Bið, hann er þar

tala, hann hlustar.

Þú ert hans barn,

hans ást umvefur þig.

Hann heyrir bæn,

hann elskar börnin,

því himinninn, Guðsríkið,

heyrir þeim til.

Lag og texti: Janice Kapp Perry, f. 1938

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

© 1984 Janice Kapp Perry. þennan söng má afrita til nota heima eða Í kirkju, en ekki Í hagnaðarskyni.

Matteusarguðspjall 19:14

Kenning og sáttmálar 112:10