Tónlist
Ættarskráin mín


100

Ættarskráin mín

Glaðlega

1. Ættartöluna alla skrái ég,

mína’ eigin ættarskrá,

Og ástæðan, að ég iðka slíkt

er alveg ljós mér hjá.

Mína minnisbók

mun ég vernda vel,

þar við mín saga skín.

Ættartala ættingjanna

er ættartalan mín.

2. Þeir sem lifa nú, líka dánir,

mega innsiglast mér hjá.

Dag einn mun ég þá alla aftur

fá örugglega´ að sjá.

Hvílík gleði þá

heyra sagt, og sjá:

„Hve fjölskyldan er fríð!

Ég er þinn og þú ert minn

nú, og um eilífa tíð.“

Lag og texti: Jeanne P. Lawler, f. 1924. © 1982 IRI; endurskoðað.

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

Hin dýrmæta perla Móse 6:5–8

Abraham 1:31