Tónlist
Amma


112

Amma

Ástúðlega

1. Ég fæ hjá þér koss,

þú faðmar mig blítt,

og fagnar, er sérðu mig.

[Chorus]

Og ég óska´ að öll börn um allan heim

ættu ömmu* eins og þig.

2. Þú lest mér í bók

og syngur mér söng,

og segir þú elskir mig.

[Chorus]

Og ég óska´ að öll börn um allan heim

ættu ömmu* eins og þig.

3. Ég vil vera góð´r

og gera allt vel,

og hvísla: „Ég elska þig.“

[Chorus]

Og ég óska´ að öll börn um allan heim

ættu ömmu* eins og þig.

* Víxlorð: Afa

Lag og texti: Nonie Nelson Sorensen, f. 1925. © 1989 IRI

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson