Tónlist
Við boðum heiminum sannleikann (Liðsveit Helamans)


92

Við boðum heiminum sannleikann

Liðsveit Helamans

Innilega

1. Sem Nefí forðum fæddumst við

af foreldrum, sem elska Guð,

og fengum skýran skilning þann:

„Oss ber að breyta sem býður Hann.“

[Chorus]

Verum eins og herflokkur Helamans,

uppfrædd í æsku um Hann.

Við viljum vera boðberar Drottins,

og boða sannleikann.

2. Síðustu daga helguð hjörð

skal hefja Guðsríkið upp á jörð.

Spámaður Drottins mælti þá:

„Lát hvern einn verðugan vitni tjá.“

[Chorus]

Verum eins og herflokkur Helamans,

uppfrædd í æsku um Hann.

Við viljum vera boðberar Drottins,

og boða sannleikann.

3. Við þekkjum öll Hans áform væn

og eflum þekking við rannsókn og bæn,

þar til við heyrum kallsins hreim:

Að boða sannleikann öllum heim.

[Chorus]

Verum eins og herflokkur Helamans,

uppfrædd í æsku um Hann.

Við viljum vera boðberar Drottins,

og boða sannleikann,

að boða sannleikann.

Lag og texti: Janice Kapp Perry, f. 1938

Íslensk þýðing: Jón Hj. Jónsson

© 1983 Janice Kapp Perry. þennan söng má afrita til nota heima eða Í kirkju, en ekki Í hagnaðarskyni.

1 Nefí 1:1

Alma 53:18–22

Kenning og sáttmálar 4:2–4