2021
Persónulegt ferðalag barns Guðs
Maí 2021


„Persónulegt ferðalag barns Guðs,“ Til styrktar ungmennum, maí 2021.

Laugardagssíðdegi

Persónulegt ferðalag barns Guðs

Útdráttur

Ljósmynd
barn

Sérhver manneskja sem kemur til jarðar er einstakur sonur eða dóttir Guðs. Persónulegt ferðalag okkar hófst ekki við fæðingu. Áður en við fæddumst, vorum við í heimi undirbúnings, þar sem við hlutum „fyrstu kennslu [okkar] í heimi andanna“ [Kenning og sáttmálar 138:56]. …

Við, sem sáttmálsbörn Guðs, elskum, heiðrum, nærum, verndum og tökum fagnandi á móti þeim öndum sem koma úr fortilverunni. …

… Gordon B. Hinckley forseti … sagði: „… Fóstureyðingar, sem flæða yfir jörðina, eru vondar.“

… Við skulum miðla djúpum tilfinningum okkar um helgi lífsins með þeim sem taka ákvarðanir í samfélaginu. Þeir meta ef til vill ekki fyllilega það sem við trúum, en við biðjum þess að þeir muni skilja betur ástæðu þess að þetta er mikilvægara en einungis það sem einstaklingur vill fyrir eigið líf. …

Ég ber vitni um að ykkar eigið persónulega ferðalag, sem barn Guðs, hófst ekki þegar súrefni jarðar fyllti lungu ykkar í fyrsta sinn og því lýkur ekki við ykkar síðasta andardrátt í jarðlífinu.

Við skulum alltaf hafa hugfast að hvert andabarn Guðs kemur til jarðar í sitt eigið persónulega ferðalag. Megum við fagna þeim, vernda þau og ætíð elska þau. Þegar þið veitið þessum dýrmætu börnum viðtöku í nafni frelsarans og liðsinnið þeim í eilífu ferðalagi þeirra, lofa ég að Drottinn mun blessa ykkur með velþóknun sinni og úthella yfir ykkur kærleika.