2021
Upphafsboðskapur
Maí 2021


„Upphafsboðskapur,“ Til styrktar ungmennum, mars 2021.

Laugardagsmorgunn

Upphafsboðskapur

Útdráttur

Ljósmynd
Byggingarsvæði Musteristorgsins

Kæru bræður og systur og vinir hvaðanæva að úr heimi, ég býð ykkur persónulega velkomin á þessa aðalráðstefnu. …

Síðasta ár er verðugt fyrir heimsmetabók. Án efa höfum við lært ýmislegt sem við ekki vissum áður. Sumar lexíur sem ég þekkti áður, hafa verið ritaðar á hjarta mitt á nýjan og leiðbeinandi hátt.

Til að mynda, veit ég fyrir víst að Drottinn stjórnar málefnum kirkju sinnar. …

Ég skil einnig betur núna hvað hann meinti er hann sagði: „Sjá, ég mun hraða verki mínu þegar að því kemur“ [Kenning og sáttmálar 88:73]. …

… Á síðastliðnu ári hafa mörg ykkar stóraukið nám á fagnaðarerindinu á heimilum ykkar. Ég þakka ykkur fyrir, börn ykkar þakka ykkur fyrir. …

Hluti samansöfnunar Síonar, sérlega mikilvægur hluti, er boðið um að við, sem fólk, séum verðug og fús til að búa heiminn undir síðari komu Drottins.

Þegar við hlýðum á boðskap, sem leiðtogar okkar hafa vandlega undirbúið með leiðsögn heilags anda, býð ég ykkur að biðjast fyrir til að fá greint óþarfan sem þið ættuð að fjarlægja úr lífi ykkar, svo að þið getið orðið verðugri.

… Verið velkomin á aðalráðstefnu og njótið þeirra forréttinda að hlýða á rödd Drottins.