2021
Þið getið safnað saman Ísrael!
Maí 2021


„Þið getið safnað saman Ísrael!,“ Til styrktar ungmennum, maí 2021.

Prestdæmisfundur

Þið getið safnað saman Ísrael!

Útdráttur

Ljósmynd
ungmenni klífandi hæð

Fyrir tæpum þremur árum, bauð Russell M. Nelson forseti öllum ungmennum Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu að skrá sig í „æskulýðssveit Drottins, til að safna saman Ísrael“ beggja vegna hulunnar. Hann sagði: „Sú samansöfnun er það mikilvægasta sem á sér stað á jörðu í dag“ [„Hope of Israel“ (heimslæg æskulýðsráðstefna, 3. júní, 2018), 8, HopeofIsrael.ChurchofJesusChrist.org]. Ég er algjörlega viss um að þið æskufólkið getið þetta – og gerið það afar vel – því það er (1) eitthvað við auðkenni ykkar og (2) hinn mikla innri kraft sem í ykkur býr. …

… Samkvæmt Opinberunarbókinni, „þá hófst stríð á himni“! [Opinberunarbókin 12:7–8]. Af slægð blekkti Satan þriðja hluta andabarna himnesks föður til að fá sig til að ríkja í stað Guðs. En þó ekki ykkur! Páll postuli sá að þið sigruðuð Satan „fyrir orð vitnisburðar [ykkar].“ … [Opinberunarbókin 12:11].

… Að vita að þið hafið áður sigrað Satan með orði vitnisburðar ykkar, mun hjálpa ykkur að „elska, miðla og bjóða“ nú og ætíð – að bjóða öðrum að koma og sjá, koma og liðsinna og koma og tilheyra, því þessi sama barátta um sálir barna Guðs á sér enn stað. …

Áætlun barna og unglinga er spámannlegt verkfæri til að hjálpa ykkur, æskufólkinu, að efla mikla trú ykkar. … Þegar þið, æskufólkið, verðið leiðandi í því að lifa eftir fagnaðarerindinu, látið ykkur annt um aðra, bjóðið öllum að taka á móti fagnaðarerindinu, sameinið fjölskyldur að eilífu og skipuleggið skemmtilega viðburði, mun hin mikla trú á Krist sem þið höfðuð í fortilverunni vakna og veita ykkur mátt til að gera verk hans í þessu lífi!