2021
Kristur er risinn; trú á hann mun færa fjöll úr stað
Maí 2021


„Kristur er risinn; trú á hann mun færa fjöll úr stað,“ Til styrktar ungmennum, apríl 2021.

Sunnudagsmorgunn

Kristur er risinn; trú á hann mun færa fjöll úr stað

Útdráttur

Ljósmynd
Jesús Kristur

Trú á Jesú Krists er undirstaða allrar trúar og lykill að guðlegum krafti. …

Allt gott í lífinu – sérhver möguleg blessun að eilífu mikilvægi – hefst með trú. Að láta Guð ríkja í lífi okkar, hefst með trú á að hann sé fús til að leiða okkur. …

Kæru bræður og systur, boð mitt til ykkar á þessum páskadagsmorgni er að þið byrjið í dag að auka við trú ykkar. Fyrir trú ykkar, mun Jesús Kristur auka getu ykkar til að færa fjöll úr stað í lífi ykkar.

Fjallið ykkar gæti verið einmanaleiki, efi, sjúkdómur eða önnur persónuleg vandamál. Fjöll ykkar eru misjöfn, en samt er svarið við öllum áskorunum ykkar að auka ykkur trú. …

… Ég ætla að setja fram fimm ábendingar til að hjálpa ykkur að þróa slíka trú og traust.

Í fyrsta lagi, lærið. …

Í öðru lagi, veljið að trúa á Jesú Krist. …

Í þriðja lagi, starfið í trú. …

Í fjórða lagi, takið á móti helgiathöfnum verðuglega. …

Í fimmta lagi, biðjið himneskan föður ykkar, í nafni Jesú Krists, um liðsinni. …

Trú á Jesú Krist er mesti mátturinn sem okkur stendur til boða í þessu lífi. Allt er þeim mögulegt sem trúa [sjá Markús 9:23].

Vaxandi trú ykkar á hann, mun færa fjöll úr stað – ekki steinfjöll sem prýða jörðu, heldur fjöll vesældar í lífi ykkar. Vaxandi trú ykkar, mun gera ykkur mögulegt að snúa áskorunum í óviðjafnanlegan vöxt og tækifæri.

Af mikilli elsku og þakklæti á þessum páskasunnudegi, lýsi ég yfir vitni mínu um að Kristur er vissulega upp risinn. Hann er risinn til að leiða kirkju sína. Hann er risinn til að blessa líf allra barna Guðs, hvarvetna. Með trú á hann, getum við fært fjöll úr stað í lífi okkar.