Ritningar
2 Nefí 19


19. Kapítuli

Jesaja talar um Messías — Þjóð í myrkri mun sjá mikið ljós — Barn er oss fætt — Hann verður friðarhöfðingi og mun ríkja í hásæti Davíðs — Samanber Jesaja 9. Um 559–545 f.Kr.

1 Engu að síður mun sortinn ekki vera slíkur, sem hann var á tímum hirtingar hennar, þegar hann þrengdi fyrst lítillega að aSebúlonslandi og Naftalílandi, en þrengdi síðan alvarlega meðfram Rauðahafinu handan Jórdanar í Galíleu þjóðanna.

2 Sú þjóð, sem í amyrkri gekk, hefur séð mikið ljós. Yfir þá, sem búa í skuggalandi dauðans, hefur ljós skinið.

3 Þú hefur margfaldað þjóðina og aaukið gleðina — menn gleðjast fyrir þínu augliti, eins og þegar menn gleðjast á kornskurðartímanum og eins og menn kætast, þegar herfangi er skipt.

4 Því að þú hefur sundur brotið ok byrðar hans, stafinn, sem reið að herðum hans, barefli kúgarans.

5 Því að hverri orrustu hermannsins fylgir ærandi háreysti, blóði stokkin klæði. En þessari hríð mun fylgja eldhaf og eldsmatur.

6 Því að abarn er oss fætt, sonur er oss gefinn, og á herðum hans skal bhöfðingjadómurinn hvíla. Og hann mun kallaður: Hinn dásamlegi, ráðgjafi, cvoldugur Guð, dævarandi faðir, efriðarhöfðingi.

7 aHöfðingjadómurinn og friðurinn mun eflast bendalaust á hásæti Davíðs og í konungsríki hans til þess að reisa það og efla með dómi og réttvísi héðan í frá og að eilífu. Eldmóður Drottins hersveitanna mun þessu til vegar koma.

8 Drottinn hefur sent orð sitt til Jakobs, og það stafar ljósi á aÍsrael.

9 Og öll þjóðin skal verða þess áskynja, bæði Efraím og Samaríubúar, sem af metnaði og stærilæti hjartans segja:

10 Tígulsteinarnir eru hrundir, en vér skulum byggja upp aftur af höggnu grjóti. Mórberjatrén hafa verið felld, en vér skulum setja sedrustré í staðinn.

11 Þess vegna mun Drottinn efla mótstöðumenn aResíns og sameina fjandmenn hans —

12 Sýrlendingar munu koma að framan og Filistar að aftan, og þeir munu asvelgja Ísrael með gapandi gini. Þrátt fyrir allt þetta linnir ekki breiði hans, heldur er hönd hans enn þá útrétt.

13 Því að þjóðin asnýr sér hvorki til hans, sem laust hana, né heldur leitar hún Drottins hersveitanna.

14 Þess vegna mun Drottinn höggva höfuð og hala af Ísrael, kvistinn og sefstráið á sama degi.

15 Öldungurinn, hann er höfuðið, en spámaðurinn, sem lygar kennir, hann er halinn.

16 Því að leiðtogar þessa fólks leiða það afvega, og þeir, sem láta leiða sig, tortímast.

17 Þess vegna hefur Drottinn enga gleði af æskumönnum þess og enga amiskunn sýna munaðarleysingjum þess og ekkjum. Því að allir eru þeir hræsnarar og illvirkjar, og hver munnur mælir bheimsku. Þrátt fyrir allt þetta linnir ekki reiði hans, heldur er chönd hans enn þá útrétt.

18 Því að hið rangláta athæfi brennur eins og eldur, eyðir þyrnum og þistlum og kveikir í þykkum skógarrunnum, svo að þeir hvirflast upp í reykjarmekki.

19 Vegna heilagrar reiði Drottins hersveitanna er landið myrkri hulið, og fólkið verður sem eldsmatur. aEnginn maður mun þyrma bróður sínum.

20 Hann rífur í sig til hægri handar og er þó hungraður. Hann aetur til vinstri handar og verður þó eigi saddur. Hver etur holdið af sínum eigin armlegg.

21 aManasse, bEfraím; og Efraím, Manasse; báðir verða þeir andsnúnir cJúda. Þrátt fyrir allt þetta linnir ekki reiði hans, heldur er hönd hans enn þá útrétt.