Ritningar
2 Nefí 22


22. Kapítuli

Á þúsund ára tímabilinu munu allir menn lofa Drottin — Hann mun dvelja meðal þeirra — Samanber Jesaja 12. Um 559–545 f.Kr.

1 Á þeim degi skaltu segja: Ég vegsama þig, ó Drottinn, því að þótt þú værir mér reiður, þá er þó horfin reiði þín, og þú huggaðir mig.

2 Sjá, Guð er hjálpræði mitt: Ég er aöruggur og hræðist hvergi, því að Drottinn bJehóva er styrkur minn og lofsöngur. Hann er einnig orðinn mér hjálpræði.

3 Og þér munuð með fögnuði avatni ausa úr lindum hjálpræðisins.

4 Og á þeim degi munuð þér segja: aLofið Drottin, ákallið nafn hans, gjörið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna, hafið í minnum að nafn hans er upp hafið.

5 aLofsyngið Drottni, því að dásemdarverk hefur hann gjört. Þetta er kunnugt um alla jörðina.

6 Lát aóma gleðihljóm og við kveða fagnaðarhróp, þú sem býrð á Síon, því að mikill er hinn heilagi Ísraels meðal þín.