2012
Frá lesendum
Apríl 2012


Frá lesendum

Nauðsynlegur áttaviti

Líahóna er áttaviti í lífi mínu. Ég mun ekki fara villu vegar með Líahóna við hönd. Ég trúi að allir sem lesa tímarit kirkjunnar geti fundið nákvæmlega það sem hann eða hún þarf á að halda. Ég er Barnafélagsforseti og fæ séð að börnin hafa unun að því að hlusta á sögur um börn lík þeim í tímaritinu. Líahóna er afar nauðsynlegur áttaviti í lífi mínu; tímaritið hjálpar okkur að forðast pytti Satans.

Yanina Ivanivna Davydenko, Úkraínu

Upplifanir sem veita huggun

Líahóna hefur hjálpað mér afar mikið með boðskap sínum og greinum. Í dagsins önn hef ég oft staldrað við til að lesa greinar blaðsins um upplifanir annarra kirkjumeðlima. Greinar þessar veita mér alltaf andlega huggun og styrkja þrá mína eftir að komast að nýju í návist Guðs og Jesú Krists, ásamt fjölskyldu minni.

João Carlos, Brasilíu