2012
Trúarreglur mínar
Apríl 2012


Trúarreglur mínar

Ég fylgi áætlun himnesks föður fyrir mig.

Ég minnist skírnarsáttmála míns og hlusta á heilagan anda.

Ég vel hið rétta. Ég veit að ég get iðrast, ef mér verður á.

Ég sýni himneskum föður, öðrum og mér heiðarleika.

Ég nota nöfn himnesks föður og Jesú af lotningu. Ég blóta ekki eða nota gróf orð.

Ég geri það sem færir mig nær himneskum föður og Jesú Kristi á hvíldardegi.

Ég heiðra foreldra mína og geri mitt til að efla fjölskyldu mína.

Ég held huga mínum og líkama heilögum og hreinum og neyti einskis sem skaðar mig.

Ég klæðist siðsamlega til að virða himneskan föður og til sjálfsvirðingar.

Ég les og horfi aðeins á það sem er þóknanlegt himneskum föður.

Ég hlusta aðeins á tónlist sem er þóknanleg himneskum föður.

Ég leita góðra vina og kem vel fram við aðra.

Ég keppi að verðugleika til að fara í musterið og geri mitt til að fjölskylda mín verði eilíf.

Ég er barn Guðs

Ég veit að himneskur faðir elskar mig og ég elska hann.

Ég get beðið til himnesks föður alltaf og alls staðar.

Ég reyni að muna eftir og fylgja Jesú Kristi.