Ritningar
Moróní 4


4. Kapítuli

Útskýrt hvernig öldungar og prestar þjónusta sakramentisbrauðið. Um 401–21 e.Kr.

1 Aðferð öldunga þeirra og presta við að þjónusta hold og blóð Krists fyrir kirkjuna. Og þeir brutu það og blessuðu í samræmi við boðorð Krists. Þess vegna vitum við, að sú aðferð er sönn. Öldungurinn eða presturinn braut það og blessaði —

2 Og þeir krupu á kné með söfnuðinum og báðu til föðurins í nafni Krists og sögðu:

3 Ó Guð, eilífi faðir, við biðjum þig, í nafni sonar þíns, Jesú Krists, að blessa og helga þetta brauð fyrir sálir allra þeirra er af því neyta; að þau megi eta í minningu um líkama sonar þíns og vitna fyrir þér, ó Guð, eilífi faðir, að þau séu fús til að taka á sig nafn sonar þíns og hafa hann ávallt í huga og halda boðorð hans, sem hann hefur gefið þeim, svo að þau megi ætíð hafa anda hans með sér. Amen.