Ritningar
Vitnisburður átta vitna


Vitnisburður átta vitna

Veri það heyrinkunnugt öllum þjóðum, kynkvíslum, tungum og lýðum, sem þetta verk sjá: Að Joseph Smith yngri, þýðandi þessa verks, hefur sýnt okkur töflurnar, sem um hefur verið rætt, og virðast þær vera úr gulli. Við handlékum eins mörg blaðanna og nefndur Smith hefur þýtt. Við sáum einnig leturgröftinn á þeim, sem allur virðist forn vinna og vandað handbragð. Og við berum því vitni í fullri alvöru, að nefndur Smith hefur sýnt okkur þetta, því að við höfum séð það og handfjallað og vitum með vissu, að nefndur Smith hefur gulltöflur þær, sem við höfum rætt um. Og við gefum heiminum nöfn okkar, til að bera heiminum vitni um það, sem við höfum séð. Og við ljúgum ekki, Guð sé vitni að því.

Christian Whitmer

Jacob Whitmer

Peter Whitmer, yngri

John Whitmer

Hiram Page

Joseph Smith, eldri

Hyrum Smith

Samuel H. Smith