2011
Elsa fer í leikbúninga
Apríl 2011


Elsa fer í leikbúninga

„Þér eruð börn Drottins, Guðs yðar“ (5 Mós 14:1).

  1. Elsu langaði að fara í leikbúninga. Hún fór í skóna hans pabba síns og setti á sig rautt gervinef.

    Ég er skondinn trúður.

  2. Elsa hljóp aftur inn í herbergið sitt. Hún setti á sig gulan smiðshjálm og greip plasthamar.

  3. Elsa hamraði í gólfið áður en hún hljóp aftur í herbergið sitt.

    Ég er flinkur smiður.

  4. Elsa fór í fjólubláan kjól með silfurglitri og þeystist út úr herberginu sínu.

  5. Elsu fannst gaman að vera prinsessa Hún var í kjólnum allan daginn.

    Ég er falleg prinsessa.

  6. Þegar að háttatíma kom fór Elsa í eftirlætis grænu náttfötin sín. Hún gekk út úr herberginu sínu og settist í kjöltu mömmu sinnar.

  7. Ég er Elsa. Ég er barn Guðs.