Til styrktar ungmennum
Sterkari en freisting
Mars 2024


„Sterkari en freisting,“ Til styrktar ungmennum, mars 2024.

Styrkur til að sigrast á synd

Sterkari en freisting

Frelsarinn getur styrkt ykkur er þið leitist við að forðast synd.

Iðrun er kraftaverk. Jesús Kristur gerði hana mögulega. Það gleður himneskan föður að fyrirgefa okkur þegar við veljum að iðrast og fylgja boðorðum hans. Þrátt fyrir að við þurfum öll að iðrast í lífinu, hvernig getum við forðast synd og tekið betri ákvarðanir?

Hér eru nokkur ráð til að öðlast styrk gegn freistingu með Jesú Kristi:

  • Lesið ritningarnar daglega.

  • Biðjist fyrir daglega.

  • Farið reglulega í kirkju.

Stundum afskrifum við þessi svör sem almenn, augljós. Ekki falla í þá gryfju! Þessi grundvallarsvör eru endurtekin svo oft því þau eru grundvallarsvörin! Þau virka.

Gerið þessa hluti og þið munið færast nær frelsara ykkar.