„Viðauki C: Fyrir Barnafélagið – Leiðbeiningar fyrir söngstund og framsetningu barna á sakramentissamkomu“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: Kenning og sáttmálar 2025 (2025)
„Viðauki C,“ Kom, fylg mér – Fyrir heimili og kirkju: 2025
Viðauki C
Fyrir Barnafélagið – Leiðbeiningar fyrir söngstund og framsetningu barna á sakramentissamkomu
Helgitónlist er öflugt verkfæri til að hjálpa börnum að læra um sæluáætlun himnesks föður og grundvallarsannleika fagnaðarerindis Jesú Krists. Þegar börn syngja um reglur fagnaðarerindisins, mun heilagur andi vitna um sannleiksgildi þeirra. Orðin og tónlistin verða í huga og hjarta barnanna alla ævi.
Leitið liðsinnis andans þegar þið búið ykkur undir að kenna fagnaðarerindið með tónlist. Gefið vitnisburð ykkar um sannleikann sem þið syngið um. Hjálpið börnunum að skilja hvernig tónlistin tengist því sem þau læra og upplifa heima og í námsbekknum.
Leiðbeiningar fyrir framsetningu á sakramentissamkomu
Framsetning barna á sakramentissamkomu er yfirleitt höfð á fjórða ársfjórðungi og þá með leiðsögn biskups. Sem forsætisráð Barnafélagsins og tónlistarstjóri, skuluð þið vinna með ráðgjafanum í biskupsráðinu sem hefur umsjón með Barnafélaginu við að skipuleggja framsetninguna.
Framsetningin ætti að gera börnunum kleift að kynna það sem þau og fjölskyldur þeirra hafa lært í Kenningu og sáttmálum heima hjá sér og í Barnafélaginu, þar á meðal Barnafélagssöngvana sem þau hafa sungið á árinu. Þegar þið skipuleggið framsetninguna, skuluð þið íhuga hvernig það getur hjálpað söfnuðinum að einbeita sér að frelsaranum og kenningum hans.
Einingar þar sem fá börn eru, geta íhugað hvernig fjölskyldumeðlimir geta tekið þátt með börnum sínum. Meðlimur biskupsráðs getur lokið samkomunni með stuttu ávarpi.
Hafið eftirfarandi í huga er þið ráðgerið framsetninguna:
-
Æfingar ættu ekki að taka óþarfa tíma frá kennslu í bekkjum eða fjölskyldum.
-
Búningar, fjölmiðlatæki og sjónræn hjálpartæki eru ekki viðeigandi fyrir sakramentissamkomu.
Sjá Almenn handbók: Þjónusta í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu, 12.2.1.2, Gospel Library.
Leiðbeiningar fyrir söngstund
5 mínútur (Barnfélagsforsætisráð): Upphafsbæn, ritningarvers eða trúaratriði og ein ræða
20 mínútur (tónlistarstjóri): Söngstund
Barnafélagsforsætisráðið og tónlistarstjóri velja söngva fyrir hvern mánuð til að undirstrika þær reglur sem börnin læra í bekkjum sínum og heima. Finna má lista yfir söngva sem undirstrika þessar reglur í þessari námsbók.
Þegar þið kennið börnunum söngva, bjóðið þeim þá að miðla því sem þau hafa þegar lært um sögurnar og kenningarreglur söngvanna. Bjóðið börnunum að miðla hugsunum sínum og tilfinningum um sannleikann sem finna má í söngvunum.
Barnasöngbókin er meginsöngbók Barnafélagsins. Sálmar úr sálmabókinni og söngvar úr Barnavini eru líka viðeigandi. Notkun annarrar tónlistar í Barnafélaginu verður að vera samþykkt af biskupsráði (sjá Almenn handbók, 12.3.4).
Tónlist fyrir söngstund
Janúar
-
„Fylgið spámanninum,“ Barnasöngbókin, 58
-
„Rannsaka og biðja,“ Barnasöngbókin, 66
Febrúar
-
„Gjör allt þitt rétt,“ Barnasöngbókin, 80
-
„Bæn barns,“ Barnasöngbókin, 6
Mars
-
„Eins og stjarna“ Barnasöngbókin, 84
-
„Þegar ég skírist,“ Barnasöngbókin, 53
Apríl
-
„Þegar hann kemur aftur,“ Barnasöngbókin, 46
-
„Reis Jesús upp?,“ Barnasöngbókin,“ 45
Maí
Júní
-
„Heilagur andi,“ Barnasöngbókin, 56
-
„Kristniboði strax,“ Barnasöngbókin, 90
Júlí
-
„Gjör allt þitt rétt“ Barnasöngbókin, 80
-
„Hann sendi soninn,“ Barnasöngbókin, 20
Ágúst
-
„Mig langar að líkjast Jesú,“ Barnasöngbókin, 40
-
„Í faðmi frelsarans,“ Barnasöngbókin, 42
September
-
„Musterið,” Barnasöngbókin, 99
-
„Sólskinsbarn“ Barnasöngbókin, 38
Október
-
„Ættarskráin mín,“ Barnasöngbókin, 100
-
„Kirkja Jesú Krists,“ Barnasöngbókin, 48
Nóvember
-
„Boðorðin haldið“ Barnasöngbókin, 68
-
„Landnemabörnin,“ Barnasöngbókin, 137
Desember
-
„Guðs barnið eitt ég er,“ Barnasöngbókin, 2
-
„Ó borgin litla, Betlehem.,“ Sálmar, nr. 81
Nota tónlist til að kenna kenningu
Söngstund er ætlað að hjálpa börnunum að læra sannleika fagnaðarerindisins. Eftirfarandi hugmyndir geta veitt ykkur innblástur þegar þið skipuleggið hvernig þið kennið reglur fagnaðarerindisins sem eru í sálmum og Barnafélagssöngvum.
Lesið tengd ritningarvers. Í mörgum söngvum í Barnasöngbókinni og sálmabókinni eru skráðar tilvísanir í tengd ritningarvers. Hjálpið börnunum að lesa suma þessara ritningarhluta og ræðið hvernig ritningarversin tengjast söngnum. Þið gætuð líka skráð nokkrar ritningartilvísanir á töfluna og boðið börnunum að tengja hverja tilvísun við söng eða stef í söng.
Fyllið í eyðurnar. Skrifið eitt erindi söngsins á töfluna, þar sem nokkur lykilorð vantar. Biðjið síðan börnin að syngja sönginn og hlusta eftir þeim orðum sem fylla á í eyðurnar. Þegar þau fylla í hverja eyðu, ræðið þá hvaða reglur fagnaðarerindisins þið lærið af orðunum sem vantar.
Vitnið. Gefið börnunum stuttan vitnisburð um sannleika fagnaðarerindisins sem er að finna í Barnafélagssöngnum. Hjálpið börnunum að skilja að söngur er ein leið til að gefa vitnisburð og skynja andann.
Standið sem vitni. Bjóðið börnunum að skiptast á að standa upp og miðla því sem þau læra af söngnum sem þau syngja eða hvað þeim finnst um sannleikann sem kenndur er í söngnum. Spyrjið hvernig þeim líður þegar þau syngja sönginn og hjálpið þeim að bera kennsl á áhrif heilags anda.
Notið myndir. Biðjið börnin um að hjálpa ykkur að finna eða búa til myndir sem passa við mikilvæg orð eða orðtök í söngnum. Bjóðið þeim að segja frá því hvernig myndirnar tengjast söngnum og hvað hann kennir. Ef þið eruð til dæmis að kenna sönginn „Þegar hann kemur aftur“ (Barnasöngbókin, 46), gætuð þið sett myndir um allt herbergið sem tákna mikilvæg orði úr laginu (eins og englasöng, vetrartíð, og stjarna). Biðjið börnin að safna saman myndunum og halda þeim á lofti í réttri röð þegar þið syngið sönginn saman.
Hafið sýnikennslu. Þið gætuð notað hluti til að hvetja til umræðu um sönginn. Þegar þið til dæmis syngið lagið „Gefum“ (Barnasöngbókin, 116), gætuð þið sýnt börnunum mynd af hugtökum eins og lækur, gras, skúr og blóm. Þetta gæti leitt til umræðu um það hvernig jafnvel hið minnsta þjónustuverk geti blessað aðra á mikilvægan hátt.
Bjóðið börnunum að miðla persónulegum upplifunum. Hjálpið börnunum að tengja reglurnar sem kenndar eru í söngnum við upplifanir sem tengjast þessum reglum. Dæmi: Áður en þið syngið „Musterið“ (Barnasöngbók, 99), þá gætuð þið beðið börnin að rétta upp hönd, ef þau hafa séð musteri. Bjóðið þeim, á meðan þau syngja, að hugsa um það hvernig þeim líður þegar þau sjá musteri.
Spyrjið spurninga. Það eru margar spurningar sem þið getið spurt þegar þið syngið söng. Dæmi: Þið gætuð spurt börnin hvað þau læri af hverju erindi söngsins. Þið getið líka beðið þau um að hugsa um spurningar sem söngurinn svarar. Þetta getur leitt til umræðu um sannleikann sem kenndur er í söngnum.
Notið einfaldar handahreyfingar. Bjóðið börnunum að hugsa um einfaldar handahreyfingar til að auðvelda þeim að læra texta og boðskap söngs. Þegar þið til dæmis syngið „Rannsaka og biðja“ (Barnasöngbókin, 66), gætuð þið boðið börnunum að benda á augu sín er þau syngja um að lesa í ritningunum, benda á höfuð sér er þau syngja um að hugleiða og krossleggja handleggina er þau syngja um að biðja.