Barnavinur
Meiri tími með Max
Mars 2024


„Meiri tími með Max,“ Barnavinur, mars 2024, 42.

Skrifað af ykkur

Meiri tími með Max

Einu sinni fór ég í útilegu á ströndina með fjölskyldu minni, nokkrum vinum mínum og hundinum mínum Max. Við syntum og lékum okkur allan daginn. Svo horfðum við á flugelda þegar það var komið myrkur. Það var einstaklega gaman.

Þegar flugeldasýningunni lauk fór ég að leita að Max. En hann var farinn! Ég varð hrædd og hrópaði að Max væri týndur. Á meðan tárin runnu niður andlit mitt leituðum við að honum í skóginum. Ég heyrði lága rödd í huga mér segja mér að fara með bæn, svo ég gerði það. En líkami minn var máttlaus eins og núðla og ég var hrædd um Max.

Við fundum hann ekki, svo við gengum aftur að tjaldinu okkar. Ég hélt áfram að biðja í huga mínum en fór að missa von. Ég grét mig í svefn.

Nokkrum klukkutímum síðar vöktu foreldrar mínir mig með því að hrista mig. Max sat við hliðina á mér! Foreldrar mínir höfðu heyrt hljóðið í hálsól Max klingja fyrir utan tjaldið okkar. Ég hélt honum þétt að mér og þakkaði Guði hljóðlega fyrir að svara bænum mínum.

Ljósmynd
alt text

Þremur árum síðar meiddi Max sig í bakinu og var mjög verkjaður. Það var ekki hægt að lækna hann, svo að við urðum að kveðja hann. Himneskur faðir huggaði mig og veitti mér frið. Heilagur andi minnti mig á að við höfðum næstum því misst Max þremur árum áður, en Guð hjálpaði okkur að finna hann. Ég er þakklát fyrir að hann gaf okkur meiri tíma með Max.

Ég veit að Guð svarar bænum og veitir huggun í raunum. Friðþæging Jesú Krists er fyrir alla. Ég er svo þakklát fyrir það sem Jesús Kristur og himneskur faðir hafa gert fyrir mig og fjölskyldu mína.

Ljósmynd
PDF-saga

Myndskreyting: Camarie Brunson