Ritningar
2 Nefí 21


21. Kapítuli

Stofn Ísaí (Kristur) mun fella réttlátan dóm — Þekkingin á Guði mun fylla jörðina í þúsund ára ríkinu — Drottinn mun reisa merki og safna saman Ísrael — Samanber Jesaja 11. Um 559–545 f.Kr.

1 En kvistur mun fram spretta af stofni Ísaí og angi upp vaxa af rótum hans.

2 Yfir honum mun hvíla andi Drottins, andi vísdóms og skilnings, andi ráðspeki og kraftar, andi þekkingar og ótta Drottins —

3 Sem mun skerpa skilning hans í Drottins ótta. Hann mun ekki dæma eftir því, sem augu hans sjá, og ekki skera úr málum eftir því, sem eyru hans heyra.

4 En með réttlæti mun hann dæma hina fátæku og skera með sannsýni úr málum hinna hógværu á jörðunni. Hann mun ljósta jörðina með sprota munns síns og deyða hina ranglátu með anda vara sinna.

5 Réttlæti verður beltið um lendar hans og trúfesti beltið um mjaðmir hans.

6 Þá mun úlfurinn una hjá lambinu og pardusdýrið liggja hjá kiðlingnum, kálfar, ung ljón og alifé ganga saman og ungt barn gætir þeirra.

7 Og kýr og birna verða á beit saman, kálfar og húnar liggja hvorir hjá öðrum og ljónið mun hey eta sem naut.

8 Brjóstmylkingurinn mun leika sér við holu nöðrunnar og barnið, nývanið af brjósti, stinga hendi sinni inn í bæli hornormsins.

9 Hvergi á mínu heilaga fjalli mun illt framið né nokkru tortímt, því að jörðin verður full af þekkingu á Drottni, á sama hátt og djúp sjávar er vötnum hulið.

10 Á þeim degi mun rótarkvistur Ísaí standa sem merki fyrir lýðinn, og til þess munu Þjóðirnar leita, og hvíld hans verður dýrðleg.

11 Og svo ber við, að á þeim degi mun Drottinn útrétta hönd sína öðru sinni til þess að endurheimta þær leifar fólks síns, sem eftir eru í Assýríu, Norður-Egyptalandi, Suður-Egyptalandi, Blálandi, Elam, Sínear, Hamat og á eyjum sjávar.

12 Og hann mun reisa merki fyrir þjóðirnar, heimta saman hina brottreknu úr Ísrael og safna saman hinum tvístruðu úr Júda, úr fjórum höfuðáttum heims.

13 Þá mun öfund Efraíms einnig hverfa og fjandskapur Júda líða undir lok. Efraím mun ekki öfundast við Júda og Júda ekki fjandskapast við Efraím.

14 Þeir munu steypa sér niður á herðum Filista gegn vestri og í sameiningu ræna austbyggja. Edóm og Móab munu þeir hremma og Ammónítar verða þeim lýðskyldir.

15 Og Drottinn mun þurrka upp voga Egyptahafs og bregða hendi sinni yfir fljótið í stríðum stormi og skipta því í sjö kvíslir, svo að yfir má ganga þurrum fótum.

16 Og það skal verða brautarvegur fyrir þær leifar fólks hans, sem enn er eftir í Assýríu, eins og var fyrir Ísrael, þá er hann fór frá Egyptalandi.