Barnavinur
Kæru ungu vinir
Skírn og staðfesting


„Kæru ungu vinir,“ Barnavinur, ágúst 2023, 1.

Kæru ungu vinir,

Ljósmynd
alt text

við vonum að þið munið njóta þessarar sérstöku útgáfu af Barnavini. Hún snýst um að vera skírð og staðfest.

Ef þið eruð nýskírð, bjóðum við ykkur velkomin sem nýjan meðlim í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu!

Þegar þið skírist, þá fylgið þið fordæmi frelsara okkar, Jesú Kristi. Þið lofið að hafa frelsarann í huga og halda boðorð hans. Þessi loforð heita sáttmálar. Þegar þið eruð staðfest, hljótið þið gjöf heilags anda. Heilagur andi getur huggað, leiðbeint og veitt ykkur innblástur út ævina.

Ef þið hafið nú þegar verið skírð, hvetjum við ykkur til að minnast sáttmálanna sem þið gerðuð í skírninni og reyna að fylgja Jesú á hverjum degi.

Ef þið hafið enn ekki verið skírð, vonum við að þið munið undirbúa ykkur með því að læra meira um þetta mikilvæga skref.

Við erum svo stoltir af ykkur. Við vitum að himneskur faðir vakir yfir ykkur. Hann elskar ykkur afar heitt og það gerum við líka.

Æðsta forsætisráðið

Ljósmynd
alt text
Ljósmynd
alt text here