Til styrktar ungmennum
Tengjast
Janúar 2024


„Tengjast,“ Til styrktar ungmennum, jan. 2024.

Tengjast

Nelina N.

12 ára, Sofía, Búlgaríu

Ljósmynd
stúlka

Ljósmynd: Christina Smith

Það eru ekki margir meðlimir Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu þar sem ég bý. Ég varð að bíða eftir leyfi frá föður mínum um að skírast, en mig langaði mikið til þess. Ég bað þess á hverjum degi að hann myndi gefa mér leyfi.

Dag einn hringdi hann og sagði mér að ég gæti látið skírast! Ég var mjög spennt! Ég vissi að val mitt myndi hjálpa mér að fylgja í fótspor Krists.

Sem nýr meðlimur kirkjunnar, langaði mig verulega að þjóna, því ég sá annað fólk reglulega þjóna. Ég bað mikið um að Guð gæfi mér einhvern til að þjóna. Eina nóttina dreymdi mig að ég sæi konu í neðanjarðarlestinni sem þarfnaðist aðstoðar eftir að hafa dottið úr sæti sínu. Seinna, þegar faðir minn og ég vorum að ferðast í neðanjarðarlestinni, sá ég konu detta úr sæti sínu. Þetta var konan úr draumnum mínum! Það var heilög upplifun fyrir mig að geta aðstoðað hana.