2022
Andinn getur hjálpað mér að vita hvernig á að þjóna
Mars 2022


„Andinn getur hjálpað mér að vita hvernig á að þjóna,“ Til styrktar ungmennum, mars 2022.

Þemað og ég

Ungmenni miðla því hvernig þau lifa eftir þema Stúlknafélagsins og þema Aronsprestdæmissveita

Andinn getur hjálpað mér að vita hvernig á að þjóna

„Ég, sem lærisveinn Jesú Krists, leitast við að líkjast honum. Ég leita persónulegrar opinberunar og bregst við henni og þjóna öðrum í helgu nafni hans.“

Ljósmynd
stúlka

Í Kóvid-19 faraldrinum hafa margir misst einhverjar tekjur og jafnvel misst atvinnuna. Mig langaði að létta þeim aðeins byrðar. Með stuðningi mömmu og pabba, og með því að nota eigið fé, tók ég að gefa þeim mat sem voru nauðstaddir. Yfirleitt gerði ég þetta með því að panta mat fyrir aðra gegnum smáforrit hjólaleigu. Stundum fór ég með mat á staði sem voru sérstaklega ætlaðir þeim sem áttu erfitt.

Í Indónesíu eru margir sem leigja sig út á mótorhjólum. Við notum smáforrit í símunum okkar til að bóka þjónustu þeirra. Í faraldrinum áttu þessi mótorhjólasendlar erfitt með að fá pantaðar ferðir.

Dag einn brást ég við hvatningu andans til að hjálpa einum slíkum aðila af handahófi. Ég pantaði mat í smáforriti hjólaleigunnar. Þegar hann svo kom á veitingastaðinn til að sækja matinn, sendi ég honum skilaboð um að maturinn færi í raun fyrir hann. Hann varð undrandi og trúði vart að maturinn væri fyrir hann. Þegar ég sagði að maturinn væri fyrir hann, færði hann mér strax þakkir og bað fyrir mér. Hann sagðist fara með matinn heim til sín og gefa hann barni sínu. Hann var svo glaður í bragði. Þetta veitti mér líka mikla gleði!

Þótt ég og fjölskylda mín ættum líka við nokkra erfiðleika að glíma, þá hlustaði ég á andann og valdi að þjóna. Okkur var mögulegt að upplifa gleði og hamingju, sem hjálpaði okkur að sigrast á áskorunum okkar.

Ég er svo þakklát fyrir heilagan anda. Þessi reynsla minnir mig á ritningarvers í Nýja testamentinu, Jóhannes 13:34: „Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað.“ Ég veit að þegar við fylgjum andanum, þá munum við hljóta dásamlegar blessanir frá himneskum föður.

Höfundurinn býr í West Java, Indónesíu.