2016
Himneskur faðir talaði til mín í gegnum ráðstefnuræðu
April 2016


Æskufólk

Himneskur faðir talaði til mín í gegnum ráðstefnuræðu

Höfundur býr í Sergipe, Brasilíu.

Ég hafði efasemdir um hvað ég ætti að læra í háskólanum. Flestir töluðu gegn þeirri námsbraut sem ég vildi halda út á, svo ég bað til Drottins til að komast að því hvort hann væri í samhljómi við ákvörðun mína.

Svarið barst mér daginn eftir, er ég las aðalráðstefnuræðu í Líahóna. Mér fannst himneskur faðir segja við mig að hann gæti ekki valið fyrir mig — ég yrði sjálf að taka þessa ákvörðun. Mér varð ljóst að hvert sem val mitt yrði, þá yrði ég að leggja hart að mér til að ná árangri.

Ég veit að bæn minni var svarað. Staðfesting heilags anda hjálpaði mér við ákvörðun mína. Mér hefur lærst að ef ég geri mitt besta, þá mun himneskur faðir hjálpa mér.