Nýja testamentið 2023
Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur


„Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Nýja testamentið 2023 (2022)

„Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur,Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2023

Notkun Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur

Fyrir hverja er þessi kennslubók?

Þetta námsefni er fyrir alla einstaklinga og fjölskyldur í kirkjunni. Því er ætlað að hjálpa ykkur að læra fagnaðarerindið – hvort heldur á eigin spýtur eða með fjölskyldu ykkar. Ef þið hafið ekki áður lært fagnaðarerindið reglubundið, getur þessi kennslubók hjálpað ykkur að byrja á því. Ef þið hafið þegar tileinkað ykkur góðar námsvenjur, gæti þessi kennslubók hjálpað ykkur að hljóta innihaldsríkari upplifanir.

Ljósmynd
Eiginmaður og eiginkona læra ritningarnar

Hvernig ber mér að nota þessa kennslubók?

Notið kennslubókina á hvern þann hátt sem hún gagnast ykkur. Ykkur gæti fundist hún gagnleg sem leiðarvísir eða hjálp við einkanám og fjölskyldunám á ritningunum. Þið gætuð líka notað hana fyrir kvöldstund heima við. Lexíudrögin draga fram mikilvægar reglur í Nýja testamentinu, leggja til hugmyndir og verkefni fyrir einstaklinga og fjölskyldur og sjá ykkur fyrir rými til að skrá hughrif ykkar.

Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur er ekki ætlað að leysa af hendi eða keppa við annað gott sem þið þegar gerið til að læra fagnaðarerindið. Fylgið leiðsögn andans við að ákveða hvernig best mætti haga einkanámi ykkar á orði Guðs.

Hvernig tengist þessi kennslubók því sem á sér stað í kirkju?

Lexíudrög þessa námsefnis miðast við vikulega lestrardagskrá. Námsefnið Kom, fylg mér fyrir Barnafélag, fyrir sunnudagaskóla og fyrir námsbekki Aronsprestdæmissveita og Stúlknafélags fylgir sömu dagskráráætlun. Kennarar ykkar í kirkju munu gefa ykkur kost á að miðla upplifunum ykkar, hugsunum sem og spurningum um ritningarvers sem þið hafið lært á heimili ykkar, til að styðja ykkur við að læra fagnaðarerindið á heimili ykkar og lifa eftir því.

Þar sem kennsla sunnudagaskólans er einungis tvisvar í mánuði, gætu kennarar sunnudagaskólans kosið að sleppa lexíudrögum eða sameina þau, til að fylgja þessari vikulegu áætlun. Það gæti líka verið nauðsynlegt (fyrir bæði sunnudagaskóla og Barnafélag) þær vikur sem venjubundnar kirkjusamkomur falla niður sökum stikuráðstefnu eða af öðrum ástæðum. Í þeim vikum eruð þið hvött til að halda áfram að læra Nýja testamentið á heimili ykkar.

Þarf ég að fylgja áætluninni?

Dagskráin mun hjálpa ykkur að ljúka lestri Nýja testamentisins fyrir árslok. Auk þess getur það leitt til mikilvægrar reynslu á heimilinu, í kirkjunni og annars staðar að fylgja sömu áætlun og allir aðrir gera. Látið áætlunina þó ekki íþyngja ykkur eða skylda ykkur til að lesa hvert einasta vers; hún er einungis til að hjálpa ykkur að halda jöfnum námshraða. Mikilvægast er að þið séuð að læra fagnaðarerindið sem einstaklingar og fjölskylda.