Nýja testamentið 2023
Trúarumbreyting er markmið okkar


„Trúarumbreyting er markmið okkar,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Nýja testamentið 2023 (2022)

„Trúarumbreyting er markmið okkar,“ Kom, fylgið mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2023

Ljósmynd
kona lærir ritningarnar

Trúarumbreyting er markmið okkar

Markmið alls trúarnáms og kennslu er að auka trúarlegan viðsnúning okkar að himneskum föður og Jesú Kristi og hjálpa okkur að verða líkari þeim. Af þessari ástæðu, leitum við ekki einungis nýrra upplýsinga þegar við lærum fagnaðarerindið, heldur viljum við verða „[ný sköpun]“ (2. Korintubréf 5:17). Í því felst að við reiðum okkur á að himneskur faðir og Jesús Kristur breyti hjarta, viðhorfi, verkum og eðli okkar.

Að læra fagnaðarerindið á þann hátt að það styrki trú okkar og leiði til undursamlegrar trúarumbreytingar, gerist ekki í einni svipan. Hún gerist með því að ná til hjartna og heimila einstaklinga utan kennslustofunnar. Það krefst stöðugrar, daglegrar viðleitni að skilja og tileinka sér fagnaðarerindið. Trúarnám sem leiðir til sannrar trúarumbreytingar krefst áhrifa heilags anda.

Heilagur andi leiðir okkur í sannleikann og vitnar um þann sannleika (sjá Jóhannes 16:13). Hann upplýsir hug okkar, vekur skilning okkar og snertir hjarta okkar með opinberun frá Guði, uppsprettu alls sannleika. Heilagur andi hreinsar hjarta okkar. Hann vekur okkur þrá til að lifa eftir sannleikanum og hvíslar að okkur hvernig við getum gert það. Sannlega mun „andinn heilagi … kenna [okkur] allt“ (Jóhannes 14:26).

Við ættum því fyrst og fremst að sækjast eftir samfélagi andans af þeirri ástæðu, er við tileinkum okkur, lærum og kennum fagnaðarerindið. Það markmið ætti að stjórna vali okkar, hugsunum og verkum. Við ættum að leita þess sem laðar að áhrif andans og hafna öllu því sem heldur þeim fjarri – því við vitum, að ef við getum verið verðug návistar heilags anda, getum við einnig verið verðug þess að dvelja í návist himnesks föður og sonar hans, Jesú Krists.