Nýja testamentið 2023
Fleiri heimildir


„Fleiri heimildir,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Nýja testamentið 2023 (2022)

„Fleiri heimildir,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2023

Ljósmynd
fjölskylda lærir ritningarnar

Fleiri heimildir

Þessar heimildir má finna í smáforritinu Gospel Library og á ChurchofJesusChrist.org.

Sálmar og Barnasöngbókin

Helg tónlist laðar að andann, hjálpar okkur að finna elsku Guðs og kennir kenningu, svo eftirminnilegt sé. Auk prentuðu útgáfanna Sálmar og Barnasöngbókin, má finna mynd- og hljóðupptökur margra sálma og barnasöngva á music.ChurchofJesusChrist.org og í smáforritunum Sacred Music og Gospel Media.

Kennslubækur trúarskóla yngri og eldri deilda

Í kennslubókum trúarskóla yngri og eldri deilda er sögubakgrunnur og kenningarlegar útskýringar á reglum og frásögnum í ritningunum.

Kirkjutímaritin

Í tímaritunum Barnavini, Til styrktar ungmennum og Líahóna má finna sögur og verkefni sem geta undirstrikað reglurnar sem þið kennið í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur.

Trúarefni

Í Gospel Topics [Trúarefni] (topics.ChurchofJesusChrist.org) má finna helstu upplýsingar um hið fjölbreytta trúarefni, ásamt hlekkjum að gagnlegu námsefni, svo sem efnistengdum aðalráðstefnuræðum, greinum, ritningarversum og myndböndum. Í Gospel Topics Essays [Trúarefni] má einnig finna tengdar upplýsingar um kenningarlegt og sögulegt efni, sem og svör við ýmsum spurningum um kirkjuna og kenningar hennar.

Sögur úr Nýja testamentinu

Sögur úr Nýja testamentinu geta verið gagnlegar við að kenna börnum kenningar og frásagnirnar í Nýja testamentinu. Þið getið líka fundið myndbönd með þessum frásögnum í smáforritinu Gospel Library og á GospelMedia.ChurchofJesusChrist.org.

Litabók – Sögur úr Nýja testamentinu

Í þessari bók eru skemmtilegar verkefnasíður, til að auðga nám barna í Nýja testamentinu.

Myndbönd og listrænt efni

Listrænt efni, myndbönd og annað efni getur hjálpað fjölskyldu ykkar að skilja kenningu og myndgera frásagnir sem tengjast ritningunum. Farið í Gospel Media á GospelMedia.ChurchofJesusChrist.org til að kanna námsgagnasafn kirkjunnar. Gagnasafnið er einnig aðgengilegt sem smáforrit. Margar myndir sem þið getið notað má finna í Trúarmyndabók.

Teaching in the Savior’s Way [Kenna að hætti frelsarans]

Námsefnið Teaching in the Savior’s Way getur verið ykkur gagnlegt við að læra um og tileinka ykkur reglur og aðferðir kristilegrar kennslu.