Nýja testamentið 2023
Hugmyndir til að bæta ritningarnám fjölskyldunnar


„Hugmyndir til að bæta ritningarnám fjölskyldunnar,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: Nýja testamentið 2023 (2022)

„Hugmyndir til að bæta ritningarnám fjölskyldunnar,“ Kom, fylg mér – Fyrir einstaklinga og fjölskyldur: 2023

Ljósmynd
móðir og barn læra ritningarnar

Hugmyndir til að bæta ritningarnám fjölskyldunnar

Reglubundið ritningarnám fjölskyldunnar er árangursrík leið til að hjálpa fjölskyldu ykkar að finna áhrif heilags anda og læra fagnaðarerindið. Hversu mikið og hversu lengi þið lesið saman sem fjölskylda er ekki jafn mikilvægt og að læra jöfnum höndum. Þegar þið gerið ritningarnám að mikilvægum hluta fjölskyldulífsins, munið þið hjálpa fjölskyldumeðlimum ykkar að komast nær himneskum föður og Jesú Kristi og grundvalla vitnisburð sinn á orði Guðs. Íhugið að ræða saman um eftirfarandi spurningar:

  • Hvernig geta fjölskyldumeðlimir hvatt hver annan til að læra ritningarnar á eigin spýtur?

  • Hvað geta fjölskyldumeðlimir ykkar gert til að hvetja hvern og einn í fjölskyldunni til að miðla því sem lært er?

  • Hvernig getið þið lagt áherslu á reglurnar sem þið lærið í Nýja testamentinu í daglegum kennslutækifærum?

Hafið í huga að heimilið er besti staðurinn til trúarnáms. Þið getið lært og kennt fagnaðarerindið á heimilinu á þann hátt sem ekki er mögulegt að gera í námsbekkjum kirkjunnar. Verið skapandi er þið hugleiðið leiðir til að hjálpa fjölskyldu ykkar að læra úr ritningunum. Hugleiðið einhverjar af eftirfarandi hugmyndum til að auðga ritningarnám fjölskyldu ykkar.

Ljósmynd
fjölskylda og kirkjuleiðtogar syngja saman á heimili

Nota tónlist

Syngið söngva sem styrkja reglurnar sem sem kenndar eru í ritningunum. Sjá má lista yfir ráðlagða sálma eða barnasöngva í öllum vikulegum lexíudrögum. Þið gætuð spurt fjölskyldumeðlimi um merkingu orða og orðtaka í textunum. Auk þess að syngja, getur fjölskylda ykkar gert hreyfingar sem eiga við um söngvana eða hlustað á söngvana á meðan önnur verkefni eru gerð. Ef þið viljið fleiri hugmyndir, sjá þá „Hafið helgitónlist með í trúarnámi ykkar“ í þessari kennslubók.

Miðla mikilvægum ritningarversum

Gefið fjölskyldumeðlimum tíma til að miðla ritningarversum sem þeim hefur fundist mikilvæg í sínu persónulega ritningarnámi.

Nota eigin orð

Biðjið fjölskyldumeðlimi að segja með eigin orðum hvað þeir læra af ritningarnámi ykkar.

Heimfæra ritningarvers upp á eigið líf

Biðjið fjölskyldumeðlimi að segja frá því hvernig boðskapurinn falli að lífi þeirra, eftir lestur ritningarversa.

Spyrja spurningar

Biðjið fjölskyldumeðlimi að spyrja spurningar um trúarefni og gefið ykkur síðan tíma til að leita versa sem gætu svarað spurningunni.

Sýna ritningarvers

Veljið vers sem ykkur finnst mikilvæg og staðsetjið þau þar sem fjölskyldumeðlimir sjá þau oft. Biðjið aðra í fjölskyldunni að skiptast á um að velja ritningarvers til að hafa á áberandi stað.

Ljósmynd
móðir og barn læra ritningarnar

Búa til ritningarlista

Veljið saman sem fjölskylda nokkur vers sem þið viljið ræða í komandi viku.

Læra ritningarvers utanbókar

Veljið ritningarvers sem eru fjölskyldu ykkar mikilvæg og biðjið fjölskyldumeðlimi að læra þau utanbókar með því að endurtaka þau daglega eða farið í minnisleik.

Miðla sýnikennslu

Finnið hluti sem tengjast trúarreglunum í ritningarhlutanum sem þið lesið saman sem fjölskylda. Biðjið fjölskyldumeðlimi að ræða hvernig hver hlutur tengist kennslunni í ritningunum.

Velja efni

Látið fjölskyldumeðlimi skiptast á við að velja efni sem fjölskyldan lærir saman. Notið Topical Guide, Bible Dictionary eða Leiðarvísi að ritningunum (scriptures.ChurchofJesusChrist.org) til að finna ritningarvers um efnið.

Teikna mynd

Lesið fáein vers saman sem fjölskylda og gefið síðan fjölskyldumeðlimum tíma til að teikna eitthvað sem tengist lestrinum. Gefið ykkur tíma til að ræða teikningar hvers annars.

Leika sögu

Biðjið fjölskyldumeðlimi að leika sögu eftir lestur hennar. Ræðið að því loknu hvernig sagan tengist því sem þið upplifið sem einstaklingar og fjölskylda.

Russell M. Nelson forseti sagði: „Ég lofa ykkur því að er þið vinnið samviskusamlega að því að endurhanna heimili ykkar í það að verða miðstöð trúarfræðslu, þá munu helgidagar ykkar að lokum verða ykkur einstaklega ljúfir. Börn ykkar munu verða spennt yfir því að læra og lifa eftir kenningum frelsarans og áhrif andstæðingsins á líf ykkar og heimili ykkar munu minnka. Breytingarnar á fjölskyldum ykkar munu verða afgerandi og varanlegar” („Verum fyrirmyndar Síðari daga heilagir,” aðalráðstefna, október 2018).