2022
Þið eruð ástkær börn Guðs
Janúar/Febrúar 2022


Frá Æðsta forsætisráðinu

Þið eruð ástkær börn Guðs

Tekið úr útsendingunni Vinur til vinar fyrir börn; 2021.

Ljósmynd
pictures of children’s faces

Kæru ungu vinir mínir, ég elska ykkur! Þegar ég sé ykkur, verður mér hugsað um barnabarnabörnin mín. Vissuð þið að í fjölskyldu minni eru barnabarnabörnin mín yfir eitt hundrað sem eru undir 12 ára aldri? Þau eru skörp og afar dýrmæt, alveg eins og þið.

Þið eruð ástkær börn Guðs. Festið það í huga ykkar! Ef þið gleymið aldrei þeim tæra sannleika, getið þið tekist á við hvaða vanda sem er, af trú og hugrekki.

Þegar þið eruð skírð og staðfest, lofið þið að fylgja Drottni. Hann lofar að senda anda sinn ykkur til leiðsagnar. Hugsið ykkur bara það ljós og þá elsku sem þið getið fært heiminum sem trúfastir fylgjendur Jesú Krists!

Kæru ungu vinir mínir, ég er svo stoltur af hverju ykkar! Ég veit að himneskur faðir vakir yfir ykkur. Hann elskar ykkur afar heitt og það geri ég líka.

Sæluáætlun himnesks föður

Ljósmynd
Page from the January/February 2022 Friend Magazine.

Litið myndirnar til að læra um áætlun himnesks föður. Lesið meira í Abraham 3–5.

Við lifðum hjá himneskum föður áður en við fæddumst.

Hann bað Jesú Krist að skapa heiminn fyrir okkur.

Jesús skapaði sólina, tunglið og stjörnurnar til að veita ljós.

Jesús gerði heiminn fallegan með trjám og blómum. Hann skapaði fiska, fugla og dýr.

Himneskur faðir setti síðan Adam og Evu, fyrstu forföður og formóður okkar, á jörðina.

Himneskur faðir elskar mig og vakir yfir mér.

Myndskreytingar eftir Elise Black