Námshjálp
ÞJS, Lúkas 6


ÞJS, Lúkas 6:29–30. Samanber Lúkas 6:29–30

Jesús kenndi að betra er að þola ofsóknir, en að stríða við óvininn.

29 Slái þig einhver á kinnina, skaltu og bjóða hina, eða með öðrum orðum, betra er að bjóða hina, en að formæla aftur. Og taki einhver yfirhöfn þína, skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka.

30 Því að betra er að þér þolið að óvinur yðar taki þessa hluti, en að stríða við hann. Sannarlega segi ég yður, himneskur faðir, sem sér það sem hulið er, mun leiða dóm yfir þann rangláta.