Námshjálp
ÞJS, Lúkas 21


ÞJS, Lúkas 21:24–26. Samanber Lúkas 21:25–26

Jesús ræðir nokkur tákn komu sinnar.

24 Nú, þetta sagði hann við þá varðandi tortímingu Jerúsalem. Og þá spurðu lærisveinarnir hann og sögðu: Meistari, seg þú oss frá komu þinni?

25 Og hann svaraði þeim og sagði: Með þeirri kynslóð, þegar tímar Þjóðanna munu uppfyllast, þá verður teikn á sólu, og á tungli, og á stjörnum; og á jörðu angist þjóða ráðlausra við drunur hafs og brimgný. Jörðin mun einnig líða, og vötn hins mikla djúps —

26 Hjörtu manna munu bregðast þeim af ótta við það, er kemur yfir heimsbyggðina. Því að kraftar himna munu bifast.

ÞJS, Lúkas 21:32. Samanber Lúkas 21:32

Allt mun uppfyllt, þegar tímar Þjóðanna uppfyllast.

32 Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð, kynslóðin þegar tímar Þjóðanna uppfyllast, mun ekki líða undir lok, uns allt er uppfyllt.