Börn og unglingar
Þið eruð dýrmæt börn Guðs


„Þið eruð dýrmæt börn Guðs,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir barna (2019)

„Þið eruð dýrmæt börn Guðs,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir barna

Þið eruð dýrmæt börn Guðs

Ljósmynd
sáttmálsvegurinn

Þið lifðuð eitt sinn með himneskum föður, sem veit allt og elskar alla. Hann vill að þið séuð lík honum! Hann gaf ykkur líkama, hæfni og andlegar gjafir. Hann vill að þið og öll börn hans uppgötvið og þroskið þessar gjafir. Hann gaf okkur áætlun til að hjálpa okkur að vera hamingjusöm og blessa aðra.

Ljósmynd
himinn og fjölskyldur

Þið komuð til jarðar frá himni. Þið eruð hluti af fjölskyldu.

Ljósmynd
skírn

Þið gerið sáttmála um að fylgja Jesú Kristi þegar þið eruð skírð og þegar þið meðtakið sakramentið.

Ljósmynd
staðfesting

Þegar þið eruð staðfest, hljótið þið gjöf heilags anda til að leiða ykkur.

Ljósmynd
fólk fyrir utan kapellu

Þið getið fundið gleði og frið þegar þið veljið að lifa eins og Jesús myndi lifa.

Ljósmynd
fólk á viðburðum

Þið getið lært og vaxið. Þið getið elskað og þjónað öðrum, líkt og Jesús myndi gera.

Ljósmynd
Jesús kennir fólki

Himneskur faðir sendi son sinn, Jesú Krist, til að vera fyrirmynd og gera okkur mögulegt að iðrast og breytast.

Ljósmynd
fjölskylda við musteri

Þið getið gert sáttmála í musterinu sem munu gera ykkur kleift að lifa aftur með himneskum föður.