Börn og unglingar
Trúarreglur mínar


„Trúarreglur mínar,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir barna (2019)

„Trúarreglur mínar,“ Eigin framþróun: Leiðarvísir barna

Trúarreglur mínar

Trúarreglur hjálpa ykkur að breyta eins og Jesús gerði. Þær geta gefið ykkur hugmyndir um nýja viðburði til að skipuleggja og framkvæma.

  • Ég fylgi áætlun himnesks föður fyrir mig.

  • Ég minnist skírnarsáttmála míns og hlusta á heilagan anda.

  • Ég mun velja hið rétta. Ég veit að ég get iðrast, ef mér verður á.

  • Ég sýni himneskum föður, öðrum og mér heiðarleika.

  • Ég ætla að nota nöfn himnesks föður og Jesú Krists af virðingu.

  • Ég mun ekki blóta eða nota dónaleg orð.

  • Ég geri það sem færir mig nær himneskum föður og Jesú Kristi á hvíldardegi.

  • Ég heiðra foreldra mína og geri mitt til að efla fjölskyldu mína.

  • Ég held huga mínum og líkama heilögum og hreinum og neyti einskis sem skaðar mig.

  • Ég klæðist siðsamlega til að virða himneskan föður og til sjálfsvirðingar.

  • Ég les og horfi og hlusta aðeins á það sem er þóknanlegt himneskum föður.

  • Ég hlusta aðeins á tónlist sem er þóknanleg himneskum föður.

  • Ég leita góðra vina og kem vel fram við aðra.

  • Ég keppi að verðugleika til að fara í musterið og geri mitt til að fjölskylda mín verði eilíf.