Kenning og sáttmálar 2021
Hugmyndir til að hvetja til sjálfsnáms og fjölskyldunáms


„Hugmyndir til að hvetja til sjálfsnáms og fjölskyldunáms,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Kenning og sáttmálar 2021 (2020)

„Hugmyndir til að hvetja til sjálfsnáms og fjölskyldunáms,“ Kom, fylg mér – Fyrir sunnudagaskólann: Kenning og sáttmálar 2021 (2020)

Ljósmynd
feðgar lesa Kom, fylg mér

Hugmyndir til að hvetja til sjálfsnáms og fjölskyldunáms

Hér eru nokkrar hugmyndir til að hvetja meðlimi bekkjarins til að læra orð Guðs heima, bæði á eigin spýtur og með fjölskyldu sinni. Gætið að því að ekki er víst að allir meðlimir bekkjarins geti lært ritningarnar með fjölskyldu sinni (sumir meðlimir búa t.d. einir eða eru í hlutaaðildar-fjölskyldum).

  • Biðjið meðlimi bekkjarins að segja frá upplifunum sem þeir hlutu við að læra ritningarnar heima. Þið gætuð t.d. beðið þá að miðla versum sem veittu þeim aukna elsku til Jesú Krists.

  • Biðjið meðlimi bekkjarins að greina frá einhverju sem þeir gera til að auðga sjálfsnám eða fjölskyldunám í ritningunum. (Sumar hugmyndir má finna í „Hugmyndir til að bæta eigið ritningarnám“ og „Hugmyndir til að bæta ritningarnám fjölskyldunnar“ í Kom, fylg mér – Fyrir einstaklingar og fjölskyldur.)

  • Biðjið meðlimi bekkjarins að segja frá því hvernig þeir brugðust við hughrifum sem þeim bárust við eigið ritningarnám eða fjölskyldunnar.

  • Gefið ykkur nokkrar mínútur til að sýna meðlimum bekkjarins eitthvað af úrræðum kirkjunnar sem hjálpa meðlimum við að læra fagnaðarerindið, svo sem hjálp við ritningarnám á scriptures.ChurchofJesusChrist.org; „Scripture Stories [Ritningarsögur]“ á children.ChurchofJesusChrist.org; efni fyrir ungmenni á youth.ChurchofJesusChrist.org; kennslubækur fyrir trúarskóla yngri og eldri deilda; og myndbönd, hljóðupptökur og myndir á MediaLibrary.ChurchofJesusChrist.org. Margt af þessu er einnig í smáforritinu Gospel Library.

  • Gefið ykkur nokkrar mínútur til að útskýra hvernig nota á smáforritið Gospel Library til að læra ritningarnar, einnig hvernig merkja á vers og skrá hughrif.

  • Biðjið einn meðlim bekkjarins eða fleiri að segja frá því hvernig þeir kenndu ákveðna meginreglu fagnaðarerindisins í fjölskyldu sinni.