2008
LIFA EFTIR BOÐORÐUM HANS
Mars 2008


LIFA EFTIR BOÐORÐUM HANS

Jesú Kristur er hinn sanni vegur, brauð lífsins. Það var hann sem fegraði alla sköpunina til hagsældar og viðurværis mannkyni. Hann er mestur meðal allra sköpunarverka Guðs, hinn eingetni sonur í holdinu og frumgetinn í andanum. Faðirinn hefur sýnt öllum hina miklu elsku sína með honum.

Allt mitt líf hef ég hlotið fjölmargar blessanir fyrir trú mína á Jesú Krist og einkum á hina helgu friðþægingu—háleitasta verk Drottins. Ég reyni að sýna elsku mína til hans með því að halda boðorð hans.

Við hjónin erum nú fulltrúar Jesú Krists og þjónum í fastatrúboði. Það felst dásamleg gleði í því að prédika fagnaðarerindi Jesú Krists og bjóða fólki að koma til hans og taka á móti honum sem frelsara þess.